Forsíða / Aðalfundur 2009 / Lög um aðalfund

Úr lögum Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga:

Kafli III – Skipulag félagsins

8. gr. Aðalfundur

Aðalfundur fer með æðsta vald í málefnum félagsins. Aðalfund skal halda í maímánuði ár hvert. Aðalfund skal auglýsa með minnst 8 vikna fyrirvara.

Stjórn félagsins skipuleggur og ber ábyrgð á undirbúningi og framkvæmd aðalfundar.

Félagsmenn með fulla aðild og fagaðild skal boða til aðalfundar með bréfi og auglýsingu í a.m.k tveimur dagblöðum, með minnst 2 vikna fyrirvara. Fundarboði skal fylgja dagskrá fundarins, tillögur til lagabreytinga og skal frestur til skráningar þátttöku á fundinn koma þar fram. Aðalfundur er lögmætur ef réttilega er til hans boðað.

Félagsmenn með fulla aðild og fagaðild sem hafa skráð sig til þátttöku á fundinn með minnst viku fyrirvara hafa atkvæðisrétt á fundinum. Aðrir fundarmenn hafa þar ekki atkvæðisrétt.

Tillögur til lagabreytinga skulu hafa borist stjórn félagsins minnst 4 vikum fyrir aðalfund. Hið sama gildir um önnur mál sem félagsmenn óska eftir að tekin verði fyrir á aðalfundi. Mál, sem ekki er tilgreint á útsendri dagskrá aðalfundar verður því aðeins tekið þar fyrir að meiri hluti atkvæðisbærra fundarmanna á fundinum samþykki það. Lagabreytingar verða ekki teknar fyrir nema þær fylgi fundarboði. Formlegar athugasemdir og tillögur til breytinga á fyrirliggjandi lagabreytingatillögum sem fram koma á aðalfundi verða bornar undir fundinn.

Viku fyrir aðalfund hið skemmsta skulu fundargögn vera aðgengileg félagsmönnum á rafrænu formi á vefsvæði félagsins, þ.m.t. skýrsla stjórnar, reikningar félagsins og sjóða á vegum þess, skýrslur endurskoðanda og skoðunarmanna, áætlanir um starfsemi og fjárhag félagsins næsta starfsár og framboð til stjórnar og annarra trúnaðarstarfa eftir því sem við á.

Þau mál sem taka skal fyrir á aðalfundi eru:

i. Kosning fundarstjóra og ritara, eftir tilnefningu stjórnar.

ii. Skýrsla stjórnar.

iii. Reikningar félagsins og sjóða á vegum þess.

iv. Ákvörðun um félagsgjöld.

v. Áætlanir um starfsemi og fjárhag félagsins næsta starfsár lagðar fram.

vi. Tillögur til lagabreytinga.

vii. Starfsreglur fyrir sjóði og nefndir félagsins, svæðisdeildir og fagdeildir eða breytingar á þeim.

viii. Formannskjöri lýst.

ix. Kjöri fulltrúa svæðisdeilda lýst.

x. Kosning annarra stjórnarmanna.

xi. Kosning skoðunarmanna.

xii. Kosning í nefndir félagsins.

xiii. Önnur mál.

Halda skal gerðarbók um það sem fjallað er um á aðalfundi. Bóka skal sérstaklega allar samþykktir og ákvarðanir fundarins. Fundargerðin skal lesin upp í fundarlok og borin undir atkvæði. Fundarstjórum er þó heimilt, með samþykki fundarins, að fela fundarriturum að ganga síðar frá fundargerðinni. Fundarstjórar og fundarritarar undirrita fundargerð.

Fundargerð aðalfundar skal birt á vefsvæði félagsins ekki seinna en viku eftir fundinn og veittur tveggja vikna frestur til athugasemda. Fundargerðin og athugasemdir sem berast skulu birtar á vefsvæði félagsins.

Prentvæn útgáfa



Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi