Forsíða / Alþjóðastarf

Alþjóðastarf


Sykepleiernes samarbeide i Norden 
Samvinna hjúkrunarfræðinga á norðurlöndum

Samvinna hjúkrunarfræðinga á norðurlöndum (SSN) er svæðisbundin samvinna stéttarfélaga hjúkrunarfræðinga á norðurlöndunum sex.
SSN á að beina athygli sinni að þróun og eiga frumkvæði í málum sem hafa áhrif á hjúkrunarfræðinga og hjúkrun á norðurlöndum.

Samvinnan á að leggja sitt af mörkum til áframhaldandi þróunar hinnar almennu heilbrigðisþjónustu og hjúkrunar á norðurlöndum. Til að styrkja þessa þróun á SSN að eiga samvinnu við og hugsanlega sækja um aðild að viðeigandi norrænum, evrópskum og alþjóðlegum samtökum.   opinbert tungumál SSN eru skandinavísku tungumálin, sænska, danska og norska.

Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga tekur virkan þátt í starfi SSN. Formenn aðildarsamtakanna mynda stjórn samtakanna. Fulltrúi Fíh í stjórn SSN er Elsa B. Friðfinnsdóttir, formaður. Varaformaður Fíh er varamaður f.h. félagsins í stjórn SSN.   

Vefur SSN

 


The European Federation of Nurses Associations
Evrópusamtök hjúkrunarfélaga

The European Federation of Nurses Associations (EFN) sem er ráðgefandi vettvangur hjúkrunarfræðinga gagnvart ESB, ákvað að á árinu 1997 að opna samtökin fyrir evrópskum félögum hjúkrunarfræðinga í löndum utan ESB.  Í framhaldinu var öllum félögum hjúkrunarfræðinga í löndum sem eiga aðild að Evrópuráðinu og eru jafnframt aðilar að ICN boðið að gerast aukaaðilar að EFN. Stjórn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga ákvað að þiggja boð samtakanna og gerðist aðili að þeim í mars 1998. 

Með aðild að EFN gefst félaginu möguleiki á að fylgjast með og hafa áhrif á stefnu ESB um hjúkrunarmál í framtíðinni, en stefna ESB í þeim málefnum sem og öðrum hefur bein áhrif á Íslandi vegna EES samningsins. Fundir samtakanna eru haldnir tvisvar á ári.

Á vorfundin EFN árið 2003 var Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga samþykkt sem fullgildur aðili að Evrópusamtökunum hjúkrunarfélaga.

Vefur EFN


ICN - The International Counsil of Nurses
Alþjóðaráð hjúkrunarfræðinga - ICN


Alþjóðaráð hjúkrunarfræðinga eru samtök hjúkrunarfélaga í rúmlega 120 löndum. Það  var stofnað árið 1899 og eru elstu og víðfeðmustu samtök heilbrigðisstétta í heiminum. Hjúkrunarfræðingar stýra ráðinu og markmið þess er að tryggja: góða hjúkrun fyrir alla, vinna að skýrri stefnumótun í heilbrigðismálum um heim allan, framfarir í hjúkrunarþekkingu og auka virðingu hjúkrunar um víða veröld. Jafnframt vinnur ráðið að því að ávallt séu hæfir og ánægðir hjúkrunarfræðingar við störf.

Siðareglur Alþjóðaráðsins liggja til grundvallar starfsemi hjúkrunarfræðinga um allan heim. Staðlar ráðsins, leiðbeiningar og stefnumörkun varðandi hjúkrunarmálefni, menntun, stjórnun, rannsóknir og þjóðfélagsmál eru viðurkenndir á alþjóðavísu.


Alþjóðaráðið hefur sett sér þrjú aðalmarkmið og fimm leiðbeinandi megin gildi.

Markmið:
að auka einingu hjúkrunar um allan heim
að stuðla að alþjóðlegum framförum hjúkrunarfræðinga og hjúkrunar
að hafa áhrif á heilbrigðisstefnu

Megin gildi:
1.   Forysta byggð á hugsjón
2.   Víðtæk nálgun
3.   Sveigjanleiki
4.   Samvinna
5.   Árangur

Höfuðstöðvar Alþjóðaráðs hjúkrunarfræðinga eru í Genf í Sviss.

Nánari upplýsingar um málefni Alþjóðaráðsins eru á vefsíðu þess. Vefsíða ICN

Eftirfarandi lönd eru aðilar að ICN

 

Andorra
Angola
Argentina
Aruba
Australia
Austria
Bahamas
Bahrain
Bangladesh
Barbados
Belize
Belgium
Bermuda
Bolivia
Botswana
Brazil
British Virgin Islands
Brunei Darussalam
Burkina Faso
Canada
Chile
Colombia
Rép. démocratique du Congo
Cook Islands
Costa Rica
Croatia
Cuba
Cyprus
Czech Rep.
Denmark
Dominican Rep.

Ecuador

Egypt
Estonia
Ethiopia
Fiji
Finland
France
Gambia
Georgia
Germany
Ghana
Greece
Grenada
Guatemala
Guyana
Haiti
Honduras
Hong Kong
Hungary
Iceland
Indonesia
Ireland
Israel
Italy
Jamaica
Japan
Jordan
Kenya
Korea
Kuwait
Latvia
Lebanon

Lesotho
Liberia

Lithuania
Luxembourg
Macao

Macedonia (FYR)
Malawi
Malaysia
Malta
Mauritius
Mexico
Monaco
Mongolia
Morocco
Mozambique
Myanmar
Namibia
Nepal
Netherlands
Netherlands Antilles
New Zealand
Nicaragua
Nigeria
Norway
Pakistan
Panamá
Paraguay
Peru
Philippines
Poland
Portugal
Romania
Russia
St. Lucia

St. Vincent
Salvador (El)
Samoa
Sao Tomé & Principe Serbia and Montenegro Seychelles
Sierra Leone
Singapore
Slovakia
Slovenia
Solomon Islands
South Africa
Spain
Sri Lanka
Swaziland
Sweden
Switzerland
Taiwan
Tanzania
Thailand
Togo
Tonga
Trinidad & Tobago
Turkey
Uganda
United Kingdom
United Arab Emirates USA
Uruguay
Venezuela
Zambia
Zimbabwe

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

WENR - Workgroup of European Nurse Researchers
Evrópusamstarf um hjúkrunarrannsóknir - WENR

Tilgangur Vinnuhóps evrópskra hjúkrunarrannsakenda er að styrkja samskipti og samvinnu þeirra í Evrópu með það í huga að hvetja vöxt og viðgang hjúkrunarrannsókna sem einn þátt í framlagi til hágæða hjúkrunar. Vinuhópurinn hefur þess vegna lagt áherslu á eftirfarandi þætti:

  • Að miðla upplýsingum um hjúkrunarrannsóknir í Evrópulöndum .
  • Að hvetja til útbreiðslu rannsókna og umræðna um þær.
  • Að stuðla að gagnreyndum aðferðum í hjúkrun.
  • Að hafa áhrif á önnur félög heilbrigðisstarfsmanna og stofnanir.
  • Að stuðla að stuðla háum siðfræðilegum kröfum í hjúkrunarrannsóknum

Vefsíða WENR


SSN
EFN
ICN
WENR



Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi