Forsíða / Alþjóðastarf / Hjúkrunarleyfi erlendis
Hjúkrunarleyfi erlendis

Nám og starf innan Evrópska efnahagssvæðisins (EES)
Með gildistöku EES-samningsins hafa íslenskir hjúkrunarfræðingar leyfi til að starfa í aðildarríkjum samningsins um Evrópska efnahagssvæðið án sérstaks atvinnuleyfis, uppfylli þeir skilyrði um menntun skv. tilskipunum um gagnkvæma viðurkenningu á prófskírteinum, vottorðum og öðrum vitnisburði um formlega menntun og hæfni. Ef ætlunin er að dveljast lengur en 3 mánuði í landinu þarf að sækja um dvalarleyfi hjá viðkomandi innflytjendayfirvöldum, sem er veitt til allt að 5 ára í fyrsta sinn en skemur fyrir þá sem dvelja eða starfa í styttri tíma en eitt ár eða eru í námi.

Aðildarríki samningsins um Evrópska efnahagssvæðið:

Austurríki, Belgía, Danmörk, Finnland, Frakkland, Grikkland, Holland, Írland, Ísland, Ítalía, Liechtenstein, Lúxemborg, Noregur, Portúgal, Spánn,

Stóra-Bretland, Svíþjóð og Þýskaland.

 

1. Umsókn um hjúkrunarleyfi
Umsókn skal send heilbrigðis-og tryggingamálaráðuneyti viðkomandi lands. 

Umsókninni fylgi:

1.    Sönnun ríkisfangs á Íslandi (staðfest afrit af vegabréfi eða vottorð frá Þjoðskrá www.thjodskra.is).

2.      Staðfest afrit af prófskírteininu sem þýtt hefur verið yfir á ensku (námsbraut í hjúkrunarfræði við HÍ eða heilbrigðisdeild HA). Ýtarlegar

upplýsingar um stundafjölda, bæði í bóklegu og verklegu námi, þurfa að fylgja með umsókninni til landa utan Norðurlandanna.

3.      Staðfest afrit af íslenska hjúkrunarleyfinu (Landlæknir). Skal þessi staðfesting ekki vera eldri en þriggja mánaða gömul. Samkvæmt lögum er ekki hægt að mismuna hjúkrunarfræðingum frá EES-ríkjum með kröfum um tungumálakunnáttu.  Hins vegar geta stofnanir sett tungumálakunnáttu sem skilyrði fyrir ráðningu.

Á eftirfarandi slóð má finna heimilisföng heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneyta í ýmsum löndum. 

http://heilbrigdisraduneyti.is/adrar-vefsidur/nr/76.                     

2.  Félagsaðild
Til þess að vera fullgildur félagsmaður með þeim réttindum, sem því fylgir, þarf viðkomandi að sækja um aðild að fag-/stéttarfélagi hjúkrunarfræðinga í aðseturslandinu og framvísa um leið staðfestingu á hjúkrunarleyfi sínu.
Á vef ICN http://www.icn.ch/addresslist.htm er yfirlit yfir vef- og heimilisföng hjúkrunarfélga víða um heim.

3.  Starfsvottorð
Reglur um starfsaldur eru mjög mismunandi eftir löndum og reiknast oft eftir starfshlutfalli og fjölda ára hjúkrunarfræðings í starfi. Íslenskum hjúkrunarfræðingum er því bent á að útvega sér starfsvottorð frá þeim stofnunum sem þeir hafa unnið á.

4.  Atvinnumöguleikar
Í öllum EES-ríkjum starfa Evróráðgjafar sem aðstoða atvinnuleitendur, vinnuveitendur og vinnumiðlunarfólk í gegnum sérstakt tölvukerfi EURES sem er skammstöfun fyrir European Employment Services. Íslenska nafnið á skrifstofunni er EES-vinnumiðlun og er hún staðsett hjá Vinnumálastofnun http://vinnumalastofnun.is/  

Hjúkrunarfræðingum er einnig bent á að kynna sér erlend tímarit hjúkrunarfræðinga sem hægt er að nálgast hjá Félagi íslenskra

hjúkrunarfræðinga.

 

5.  Skattamál
Almenna reglan er sú að einstaklingar greiði skatt af launatekjum í því ríki sem þeir vinna í og skatt af þeim eignum í því landi þar sem þær eru staðsettar. EES-vinnumiðlunin veitir allar almennar upplýsingar um skattamál í mismunandi löndum svo og embætti ríkisskattstjóra.

6.  Félagsleg réttindi
Hjúkrunarfræðingur, sem fer til atvinnuleitar eða starfa í öðru EES-ríki, getur flutt réttindi á mörgum sviðum atvinnuleysis- og almannatrygginga á milli landa. Meginreglan er sú að hann uppfylli þau skilyrði sem ríkisborgarar viðkomandi lands þurfa að uppfylla.

A.      Tryggingastofnun ríkisins gefur m.a. út eftirfarandi staðfestingarvottorð vegna almannatrygginga:

 

E-101: Vottorð um hvaða löggjöf skuli gilda.

Ef hjúkrunarfræðingur er t.d. sendur til annars EES-ríkis í tímabundna vinnu í allt að eitt ár getur hann haldið áfram að vera tryggður á Íslandi. Tryggingin er staðfest á vottorði E-301.  Ákveðnum skilyrðum þarf að fullnægja til þess að fá þetta vottorð, m.a. að vinnuveitandinn sé með starfsemi á Íslandi, eða að hjúkrunarfræðingurinn sé sjálfstætt starfandi og fullnægi skilyrðum sem sett eru fyrir sjálfstætt starfandi hjúkrunarfræðinga í viðkomandi landi.

E-104: Vottorð um búsetu. Sá sem flytur lögheimili sitt til aðildarríkja samningsins um Evrópska efnahagssvæðið verður sjúkratryggður frá fyrsta degi framvísi hann vottorði E-104 um búsetu sem staðfestir lögheimilistímabil (tryggingatímabil) einstaklings vegna sjúkratrygginga.  Að öðrum kosti þarf

hann að hafa verið búsettur í landinu í 6 mánuði til að öðlast rétt til sjúkratrygginga.

 

E-119:  Vottorð um rétt til heilbrigðisþjónustu við atvinnuleit í EES-ríki. Þetta vottorð sýnir rétt atvinnulausra einstaklinga og fjölskyldna til heilbrigðisþjónustu og bóta erlendis þegar hinn atvinnulausi er í atvinnuleit (notað í tengslum við vottorð E-303).

 

E-205:  Staðfestingarvottorð vegna lífeyristrygginga.

 

B.      Vinnumálaskrifstofa félagsmálaráðuneytisins gefur út eftirfarandi staðfestingarvottorð vegna atvinnuleysistrygginga:

E-301 (vottorð um starfstímabil sem geta nýst til bótaréttar ef viðkomandi verður atvinnulaus), E-302  (vottorð um atvinnuleysisbótarétt fjölskyldu),

E-303/0-E-303/4  (vottorð um rétt til atvinnuleysisbóta) og

E-303-5 (vottorð um rétt til atvinnuleysisbóta við heimkomu).

 

7. Samnorrænt flutningsvottorð vegna íbúaskráningar
Vegna búferlaflutninga til Norðurlanda er nauðsynlegt að afhenda viðkomandi sveitarfélagi samnorrænt flutningsvottorð, ef dvöl er áætluð 6 mánuðir eða lengur.  Þjóðskrá gefur út þetta vottorð. www.thjodskra.is


Prentvæn útgáfa


Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi