Forsíða / Deildir Fíh / Efling Fagdeilda
Efling fagdeilda

 

Samkvæmt lögum Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga vinna fagdeildir að framgangi hjúkrunar á viðkomandi sviði og skulu vera stjórn og nefndum til ráðgjafar. Í endurskoðuðum starfsreglum fagdeilda sem samþykktar voru á aðalfundi Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga 12. maí 2009, kemur fram að fagdeild vinnur að framgangi hjúkrunar á viðkomandi sérsviði í samvinnu við fagsvið Fíh og er stjórn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og nefndum til ráðgjafar um málefni á sérsviði fagdeildar (sbr. lög Fíh, 16.gr. Fagdeildir).

 

Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga telur mikilvægt fyrir faglega þróun hjúkrunar í landinu að hafa virkar og öflugar fagdeildir starfandi á sem flestum sviðum hjúkrunar.

 

Til að efla fagdeildir félagsins vill Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga styðja við starfsemi þeirra á eftirfarandi hátt:

  • Bjóða húsnæði til fundarhalda og símenntunar endurgjaldslaust. Innifalið er  fundarsalur, skjávarpi, tölva, myndvarpi og búnaður til fjarfunda einnig kaffi, te og mjólk. Leiðbeiningar um notkun tækja á skrifstofutíma. Hver fagdeild sér um tengingar í fjarfundi ef tengjast skal allt að þremur stöðum í einu. Ef um fleiri staði er að ræða þarf aðstoð skrifstofu og skal það gert á skrifstofutíma.
  • Veita styrki til starfsemi fagdeilda.

 

 

Eftirfarandi þjónusta frá skrifstofu Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga stendur fagdeildum til boða:

  • Allir formenn fagdeilda fá netfang sem tengt er viðkomandi fagdeild og endar á @hjukrun.is.  Til þess að það virki þarf að tilkynna skrifstofu félagsins um formannaskipti og netföng þeirra, svo hægt sé að tengja það innan @hjukrun.is
  • Hver fagdeild á pósthólf á skrifstofu félagsins og er allur póstur fagdeilda sem berst á skrifstofuna settur í það.  Hægt er að fá póstinn áframsendan sé þess óskað.
  • Prentun límmiða og félagalista fyrir fagdeildir.
  • Tekið er við umsóknum um inngöngu í fagdeild og áfram sent til formanns viðkomandi fagdeildar. Þegar búið er að samþykkja nýja félaga eru þeir færðir í félagaskrá.
  • Uppfærsla frá hagstofu á félagaskrá fagdeilda.
  • Tekið við pöntunum á fundarsal og Sigríðarstofu. 
  • Færsla efnis inn á heimasíðuna frá fagdeildum.
  • Senda út póst á netföng eftir netfangaskrá fagdeildar.
  • Aðstoð við ljósritun á fréttabréfi og öðrum bæklingum í lit.

  

 

 

Efni endurskoðað í júlí 2009
 

AJF/2009



Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi