Fagdeild barnahjúkrunarfræðinga
Þann 15. desember mun koma út tímarít fagdeildarinnar í fyrsta sinn og vonumst við til að geta haldið uppá það með popi og prakt. Þar munu hjúkrunarfræðingar hafa vettvang til að kynna námsferðir, rannsóknir og annað skemmtilegt sem þeir eru að fást við, auk annars skemmtilegs efnis, s.s. spurning dagsins, dagur í lífi barnahjúkrunarfræðings og jafnvel brandarar tengdir starfinu. Endilega komið hugmyndum að efni í blaðið til Guðlaugar eða Svönu. Öllum er frjálst að koma með sitt framlag.
Í lok janúar er svo ætlunin að hafa fræðsludag á Barnaspítala Hringsins, hann verður auglýstur nánar síðar.