Fagdeild geðhjúkrunarfræðinga
Starfsreglur
Nafn deildarinnar er fagdeild geðhjúkrunarfræðinga innan Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga.
Stjórn deildarinnar skal skipuð fimm félagsmönnum, formanni, varaformanni, gjaldkera, ritara og meðstjórnanda, einnig skal kjósa einn varamann í stjórn.
Stjórnarmeðlimi skal kjósa til tveggja ára í senn og ganga þrír úr stjórn annað árið og tveir það næsta.
A.m.k. einn stjórnarmeðlimur skal hafa sérfræðingsleyfi/ framhaldsmenntun í geðhjúkrun.
Aðalfundur skal haldinn í mars árlega og boðaður með minnst tveggja vikna fyrirvara.
Á dagskrá skal að jafnaði vera:
skýrsla stjórnar, reikningar kynntir og bornir undir atkvæði
lagabreytingar
árgjald ákveðið
stjórnarkjör
önnur mál
Félagar geta orðið:
þeir hjúkrunarfræðingar sem lokið hafa framhaldsmenntun í geðhjúkrun
þeir hjúkrunarfræðingar sem starfa við geðhjúkrun
ef einhver óskar þess sérstaklega að vera félagi og uppfyllir hvorugt skilyrðið hér á undan, skal hann sækja um inngöngu til stjórnar viðkomandi fagdeildar, sem hefur úrskurðarvald
Hlutverk deildarinnar er:
að vera stjórn F.Í.H. og nefndum til ráðgjafar í öllu er snýr að viðkomandi fagi
að stuðla að bættri geðhjúkrun
að bæta menntun í geðhjúkrun
að auka samstarf við aðra hjúkrunarfræðinga jafnt innanlands sem utan
að efla þverfaglegt samstarf
að vinna að kynningu geðhjúkrunar utan fagdeildar.