Fréttabréf 8. árg. okt. 2004
Deildar heilsugæsluhjúkrunarfræðinga innan
Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga
Aðalfundur
Aðalfundur Deildar heilsugæsluhjúkrunarfræðinga verður haldinn þriðjudaginn 9. nóvember nk. kl. 17:00 að Suðurlandsbraut 22.
Dagskrá fundarins:
1. Skýrsla stjórnar.
2. Ársreikningar lagðir fram til samþykktar.
3. Kosning eins stjórnarmanns.
4. Önnur mál.
5. Veitingar að hætti stjórnar.
6. Kynning og umræður um diplómanám í heilsugæslu.
Kristín Björnsdóttir dósent mun koma og kynna tillögurnar.
Fundargestum gefst einstakt tækifæri á að skiptast á skoðunum og
kynna sér fyrirhugað nám.
Fréttir frá stjórn
Stjórnin hefur verið nokkuð dugleg að hittast þetta árið. Rætt hefur verið um að halda málþing um stöðu og framtíð heilsugæsluhjúkrunarfræðinga og verður það væntanlega haldið í febrúar 2005. Mikil umræða spannst um stöðu okkar eftir að bílasamningum hjúkrunarfræðinga í heimahjúkrun var sagt upp sl. vetur. Nú verða samningar lausir í lok nóvember og því mikilvægt að halda á spöðunum. Stjórnin hefur einnig skoðað tillögur að framhaldsnámi í heilsugæslu þ.e. diplómanám og meistaranám en það nám er undirstaða aukinnar sérhæfingar hjúkrunarfræðinga í heilsugæslu. Okkur þótti þetta vera það mikið mál að ákveðið var að fá Kristínu Björnsdóttir dósent til að kynna það frekar fyrir okkur núna á aðalfundi. Hvað ætlum við að gera með framhaldsnám í heilsugæslu? Hver er staða hjúkrunarfræðinga með framhaldsnám innan heilsugæslu? Hver eru launakjörin? Þessar spurningar ásamt ótalmörgum öðrum verður varpað fram og spunnið í umræður um þessi mál. Fagdeild lungnahjúkrunarfræðinga hafði einnig samband við okkur og vildi koma á samvinnu vegna öndunarmælinga (spirometriu). Því erindi vísuðum við áfram til hjúkrunarforstjóra en styðjum eindregið þessa samvinnu. Ein af áherslum stjórnar þetta árið var blaðagrein í morgunblaðið og var hún birt 9. júlí sl. en fyrirhugað er að senda inn fleiri.
Stjórnin mun standa næsta ár að mestu óbreytt nema hvað Anna Eyjólfsdóttir segir skilið við stjórn. Því munum við kjósa um einn stjórnarmann á næsta aðalfundi. Önnu þökkum við kærlega fyrir samstarfið, en hún hefur verið okkar fulltrúi í norræna samstarfinu í mörg ár og unnið að mörgum stjórnarstörfum.
f.h. stjórnar
Sigrún K. Barkardóttir
Heilsuvernd aldraða
Haustið 2001 var sett á laggirnar þverfagleg nefnd innan Heilsugæslunnar í Reykjavík. Í nefndinni áttu sæti læknar,hjúkrunarfræðingar og iðjuþjálfi. Nefndinni var falið að skilgreina nýja þjónustu á vegum Heilsugæslunnar sem ákveðið var að hrinda í framkvæmd í kjölfar flutnings heimahjúkrunar frá heilsugæslustöðvunum í febrúar 2002.
Heilsuvernd aldraða hófst á nokkrum stöðvum fljótlega eftir flutninginn.
Í dag er komið á laggirnar deild Heilsuvernd aldraðra á allar stöðvarnar.
Markmið heilsuverndar aldraða er:
-Að styðja og styrkja eldri einstaklinga til að viðhalda andlegu,líkamlegu og félagslegu heilbrigði.
-Að aðstoða eldri einstaklinga við að færa til betri vegar og/eða aðlagast þeim breytingum sem verða oft á heilsufari aldraða og hvetja þá til sjálshjálpar.
-Að eldri einstaklingar geti dvalið sem lengst heima við aukið öryggi,haldið lífsgæðum og viðunandi lífsstíl.
Heilsuvernd aldraða er þjónusta fyrir alla íbúa hverfisins sem eru 67 ára og eldri. Hver heilsugæslustöð tilnefnir einn hjúkrunarfræðing sem er ábyrgur fyrir heilsuvernd aldraðra.( Hver heilsugæslustöð ákveður nánari verkaskiptinu).
Hjúkrunarfræðingur viðkomandi heilsugæslustöðvar er tengiliður við hverfisstjóra Miðstöðvar heimahjúkrunarog sér um að koma á föstum fundum á milli lækna heilsugæslunnar og hverfisstjóra heimahjúkrunnar. Góð tengsl og samráð skal vera milli Heilsugæslunnar, Miðstöðvar heimahjúkrunar, Félagsþjónustunnar og Landakots og gott flæði upplýsinga. Hjúkrunarfræðingur situr samráðsfundi 1 x í mánuði með ofangreindum aðilum. Hjúkrunarfræðingur sinnir opinni móttöku á heilsugæslustöð og / eða í félagsmiðstöð, hefur opinn símatíma og fer í vitjanir (heimilisathugun) eftir því sem við á. Hjúkrunarfræðingur hefur umsjón með fræðslu eldri borgara og bólusetningar eldri borgara.
Helstu verkefni hjúkrunarfræðings eru:
Skimun: Blóðþrýstingsmæling, hæðar og þyngdarmæling, blóðsykursmæling og eftirlit með sjón og heyrn.
Ráðgjöf varðandi: Holla lifnaðarhætti, mat og næringu, hreyfingu, tannheilsu, slys og slysavarnir, hjálpar og öryggistæki, andlega líðan, lyf og lyfjatiltekt, þvagleka, félagsþjónustuna, reykingar, áfengisdrykkju og fl.
Eva Kristín Hreinsdóttir
Heilsugæslan Hlíðum.
Nýir félagsmenn
Okkur er mikill akkur í að hafa sem flesta virka meðlimi í deildinni til að halda henni lifandi og virkri. Allir hjúkrunarfræðingar sem vinna við heilsugæslu eða hafa áhuga heilsuvernd og heilsueflingu eru hjartanlega velkomnir. Nýjir félagar þurfa að senda inn: nafn og kennitölu, heimilisfang, síma, netfang og vinnustað á netfangið heilsugaesla@hjukrun.is
Fréttir frá fundi NoSB í Færeyjum og kynning á NoSB-ráðstefnunni í Kaupmannahöfn næsta haust
Fullrúar Færeyinga í NoSB (Norrænt samstarf barna- og heilsugæsluhjúkruanrfræðinga) buðu til árlegs fundar hópsins í Þórhöfn 10. og 11. september s.l. Tilgangur fundarins var að miðla þekkingu og upplýsingum um það hvað barna- og heilsugæslu hjúkrunarfræðingar eru að gera á Norðurlöndunum og ekki síst að kynnast og bera saman bækur um hversdagsleg verkefni og vandamál.
Áhersla þessa fundar var forvarnir fyrir börn og unglinga, markaðssetning og fjármagnsdreifing. Rætt var um vaxandi vandamál tengd ofþyngd og andlegri heilsu barna og hvernig hjúkrunarfræðingar koma að forvörnum sem tengjast þessum þáttum. Einnig var talað um sýnileika hjúkrunar í samfélaginu. Allir þátttakendur voru sammála um að hjúkrunarfræðingar þurfi að vera duglegri að kynna sín störf og fyrir hvað hjúkrun stendur. Gefin eru út fagtímarit í Skandinavíu með faglegu upplýsandi efni fyrir foreldra og þá sem koma að umönnun barna. Það er eitthvað sem íslenskir hjúkrunarfræðingar ættu að huga að t.d. með því að skrifa reglulega pistla í tímaritið Uppeldi.
Umræða um framhaldsmenntun hjúkrunarfræðinga tók sinn sess. Sitt sýndist hverjum, en við hér á Íslandi leggjum áherslu á að með vaxandi menntun fæst betri og markvissari þjónusta.
Frá því árið 1999 hefur NoSB haldið ráðstefnu annað hvert ár. Næsta ráðstefna verður í Kaupmannahöfn 3.-4. október 2005 og ákváðu gestgjafarnir að hún færi fram á skandinavísku. Ber ráðstefnan yfirskriftina "Lífsgæði barna". Eftir góða og faglega ráðstefnu hér á Íslandi í fyrra verður fróðlegt að fylgjast með þeim nýjungum sem verða kynntar þar.
Til að hvetja hjúkrunarfræðinga, innan Deildar heilsugæsluhjúkrunarfræðinga, til dáða hefur stjórn fagdeildarinnar ákveðið að styrkja allt að 5 hjúkrunarfræðinga sem hafa áhuga á að halda erindi, kynna veggspjald eða nýjungar innan heilsugæslunnar um 10.000 kr. Fyrsti skiladagur á útdrætti (abstract) er 1. desember 2004.
Stefanía Arnardóttir
Heilsugæslunni Árbæ