Fundargerðir
Aðalfundur fagdeildar heilsugæsluhjúkrunarfræðinga 2006
Aðalfundur fagdeildar heilsugæsluhjúkrunarfræðinga var haldinn í húsnæði Icepharma 23. nóvember 2006. Á fundinum voru tekin fyrir venjuleg aðalfundarstörf. Skýrsla stjórnar var kynnt en helstu mál ársins voru málþing um heimahjúkrun sem haldið var á Grand hóteli 11. okt. sl. sem tókst sérlega vel en yfir 100 manns mættu á það. Rekstrarreikningar voru kynntir og rætt um breytingar á nafni deildarinnar en FÍH hefur gefið út nýjar starfsreglur fyrir fagadeildirnar sem kynna má sér á vef félagsins. Nokkrar breytingar urðu á stjórn. Úr stjórn gengu Þórdís Magnúsdóttir, Ásdís Sæmundsdóttir og Katrín Friðriksdóttir og þökkum við þeim kærlega fyrir vel unnin störf á síðustu árum. Í þeirra stað koma Helga Sæunn Sveinbjörnsdóttir, Sólrún Ólína Sigurðardóttir og Guðríður Guðmundsdóttir og bjóðum við þær velkomnar til starfa. Eftir aðalfund kynnti Inga Kristjánsdóttir næringarþerapisti ráð við sleni og þreytu sem fólst í samsetningu á mataræði. Þetta var mjög áhugaverð kynning og lærðu margir eitthvað nýtt um hollustu og meðferð ýmissa matvæla s.s. að kvöldrósarolía er sérlega góð á þurra húð ungabarna sem og fullorðinna. Eftir fundinn bauð starfsfólk heilbrigðissviðs Icepharma upp á kynningar á hjúkrunarvörum og léttar og góðar veitingar. Þökkum við þeim kærlega fyrir sérlega góðar móttökur.