Fagdeild Innsýn
Í hnotskurn er starf hjúkrunarfræðinga á speglunardeild
Fjölbreytt hjúkrun - ábyrgðarmikið -krefjandi - mikil sérþekking -mikið samstarf við aðrar heilbrigðisstéttir - ráðgjöf - rannsóknir - mikil nánd við sjúklinga - mjög flókin tæknileg vinna - sjúklingar á öllum aldri - mikið veikir/lítið veikir.
Hvert er hlutverk og ábyrgð hjúkrunarfræðinga á Speglanadeildum?
Góð þekking á smitgát og meðferð flókinna og viðkvæmra tækja er nauðsynleg.
Hjúkrunarfræðingur þarf að hafa breiða þekkingu þar sem unnið er með mikið veika sjúklinga í óstöðugu ástandi og einstaklinga utan úr bæ, sem við vitum lítið um. Hjúkrunarfræðingurinn þarf að hafa mjög góða yfirsýn og vera fljótur að átta sig á öllum breytingum og hafa hæfni til að bregðast rétt við óvæntum aðstæðum. Þekkingu á deyfilyfjum, milliverkun, mótefnum o.fl.
Hvaða starfssemi fer fram á Speglanadeildum ?
Eftirfarandi rannsóknir eru framkvæmdar:
Í speglunum er hægt að gera ýmislegt:
Símenntun er nauðsynleg öllum hjúkrunarfræðingum, sem vinna við Speglanir, þar sem þróun innan fagsins er mjög ör. Nú fer þjálfun fram á deildunum og tekur 6-12mán.
Unnið er að menntunarmálum og vonandi styttist í skipulagt sérnám.