Fréttabréf fagdeildarinnar nóvember 2008
Fréttabréf fagdeildarinnar nóvember 2007
Fréttabréf fagdeildarinnar mars 2007
Svefnrannsóknaeining lungnadeildar A-6 og göngudeild A-3
Göngudeild til stuðnings lungnasjúklingum
Öldrunarlækningadeild K-1 Landakoti
Markmiðið er að mæta þörfum fólks með lungnasjúkdóm fyrir sérhæfða, heildræna og samfellda hjúkrun. Einnig að aðgangur að hjúkrunarþjónustu sé greiður og þjónustustig við hæfi. Liður í því að ná settum markmiðum er að vinna með hagsmunasamtökum lungnasjúklinga.
Fjöldi lungnasjúklinga fer vaxandi og er mikilvægt að nægilegur fjöldi sérhæfðra hjúkrunarfræðinga sé til staðar til að annast þá.
Hjúkrun lungnasjúklinga fer víða fram en hér að neðan kíkjum við inn á viðamestu einingar lungnahjúkrunar á Íslandi.
sjúklingar til greiningar og meðferðar á bráðum og langvinnum lungnasjúkdómum og svefnháðum öndunartruflunum.
Á deildinni eru 22 rúm fyrir lungnasjúklinga og 3 tileinkuð svefnrannsóknum og innleiðingu meðferðar með öndunartækjum heima.
Á lungnarannsóknastofu eru auk þess gerðar umfangsmeiri lungnarannsóknir og áreynsluþolpróf.
Í tengslum við lungnadeild starfa hjúkrunarfræðingar sem veita sjúklingum og aðstandendum fræðslu og stuðning eftir útskrift af sjúkrahúsinu. Samstarf er haft við aðra fagaðila eftir þörfum.
Reykleysismiðstöð LSH er staðsett á göngudeild. Þar starfar hjúkrunarfræðingur sem veitir stuðning og fræðslu til reykleysis.
Göngudeild svefnrannsókna og Súrefnisþjónusta er staðsett á göngudeild A-3.
einstaklinga.
Veitt er einstaklingsmeðferð, á göngudeild, legudeild eða í gegnum síma, eftir því sem henta þykir. Meðferð felst í í stuðningi til reykleysis, ráðgjöf, lyfjameðferð og eftirfylgd í 1 ár í það minnsta. Í eftirfylgd er hringt í sjúkling u.þ.b. viku frá fyrsta viðtali (eftir útskrift), eftir 1, 3, 6 og 12 mánuði. Ef þörf er á þéttari eftirfylgd eða lengri er þeim óskum mætt að fremsta megni.
Við reykleysismeðferðina er meðal annars stuðst við efni úr handbókinni Tært Loft sem gefin var út 2002 af fagdeild lungnahjúkrunarfræðinga ásamt fleirum.
Reykleysismiðstöðin hefur jafnframt það hlutverk að
Fyrirmyndin að starfsemi Reykleysismiðstöðvar A3 er í mörgu reykleysismeðferð sem var veitt á Vífilsstaðaspítala til ársins 2002. Sú meðferð fólst í einstaklingsfræðslu, stuðningsfundum, fræðslu um lífsstílsbreytingar, slökun og stýrðum hugarmyndum, lyfjameðferð og eftirfylgd.
Skjólstæðingar einingarinnar eru sjúklingar með kæfisvefn, minnkaða öndunargetu og öndunarbilun af ýmsum orsökum. Starfsemin fer fram á göngudeild A-3 og leguleild A-6. Hlutverk hjúkrunarfræðinga er skipulagning innlagna, móttaka sjúklinga og eftirfylgni þeirra sem koma til greiningar, meðferðar og eftirlits vegna svefnháðra öndunartruflana.
Hjúkrunarfræðingar sjá um þjálfun og kennslu til starfsfólks og nema á A-6 og A-3, annarra deilda LSH og annarra stofnana. Starfað er í teymi með læknum, tæknimönnum og sjúkraliðum.
Í september 2005 var sett á laggirnar göngudeildarþjónusta fyrir lungnasjúklinga á göngudeild A-3. Þar starfar hjúkrunarfræðingur í 50% stöðu. Hjúkrunarfræðingurinn veitir sjúklingum og fjölskyldu stuðning eftir útskrift með heimavitjunum, símtölum eða komum á göngudeild allt eftir óskum og getu hvers og eins. Markmið starfseminnar er að stuðla að auknum lífsgæðum lungnasjúklinga og að stuðla að bata eftir að heim er komið. Í stuðningi felst fræðsla til sjúklings og fjölskyldu um sjúkdóm og meðferð, aðstoð við að framfylgja meðferð sem lagt hefur verið upp með í dvölinni á sjúkrahúsi og að vera tengiliður hans/hennar við heilbrigðiskerfið.
að meta allar beiðnir um súrefnismeðferð sem berast og leita frekari upplýsinga sé þess þörf. Velja súrefnisbúnað í samræmi við ástand og þarfir skjólstæðings en leitast er við að uppfylla þarfir hvers og eins m.t.t. hreyfigetu og færni. Veita skjólstæðingum og aðstandendum hans fræðslu og stuðning varðandi langtíma súrefnismeðferð og meta aðstæður heima fyrir. Þörf fyrir félagslega aðstoð og heimahjúkrun er könnuð. Skjólstæðingum er veitt áframhaldandi fræðsla og stuðningur bæði símleiðis og með vitjunum. Hjúkrunarfræðingar eru skjólstæðingum til aðstoðar við að bæta lífsgæði þeirra m.a. við útvegun súrefnis á ferðalögum erlendis. Hjúkrunarfræðingum súrefnisþjónustu er ætlað að halda skrá yfir alla súrefnisþega og fylgja því eftir að súrefnismeðferð sé í samræmi við fyrirmæli læknis. Hjúkrunarfræðingar súrefnisþjónustu hafa umsjón með fræðslu fyrir starfsfólk stofnana og kynna súrefnismeðferð fyrir hina ýmsu hópa sem þess óska.
Fjöldi súrefnisþega 1. janúar 1990-31. desember 2004
Remember that your capabilities and limitations will fluctuate from day to day, even from hour to hour. The important thing is to listen to what your body is telling you, and trust your own feelings.
ári. Lungnaendurhæfing er meðferðarúrræði fyrir fólk með skerðingu af völdum langvinnra lungnasjúkdóma s.s. langvinnrar lungnateppu, astma og bandvefsjúkdóma í lungum.
Endurhæfing byggir á samvinnu margra fagstétta (hjúkrunarfræðinga, lækna, iðjuþjálfa, sjúkraþjálfara, félagsráðgjafa, geðlækna, sjúkraliða, sálfræðinga og líffræðinga). Hjúkrunarfræðingar framkvæma sínar meðferðir í samræmi við hjúkrunargreiningar og byggja á rannsóknum og viðtölum við sjúkling. Markmiðið er að stuðla að auknum lífsgæðum og aðlögun fólks á sjúkdómi sínum með því að bæta líkamlega og félagslega færni og andlega líðan.
Reykingavarnir eru mikilvægur þáttur lungnaendurhæfingar og margir hætta að reykja við komu en undantekningarlaust er það skilyrði sett að fólk hætti við komu og standist það.
lungnadeild hins vegar.
Meginstarf deildarinnar er meðferð og endurhæfing aldraðra. Markmiðið er að auka hæfni einstaklingsins til þess að takast á við athafnir daglegs lífs og /eða auka líkamlega, andlega og félagslega færni þeirra. Lögð er áhersla á að fá góða yfirsýn yfir aðstæður hvers og eins og reynt er að leita úrlausna í samvinnu við þá sem í hlut eiga. Þurfi sjúklingurinn aðstoð eftir að heim er komið, s.s. heimahjúkrun eða heimilishjálp er hún skipulögð fyrir útskrift af starfsfólki deildarinnar.
Margir sjúklingar þurfa að gangast undir rannsóknir og meðferð á öðrum deildum LSH í Fossvogi eða á Hringbraut. Ferðir þangað eru á vegum deildarinnar.
Stunduð er öflug þekkingarþróun innan fræðigreinarinnar í samvinnu við hjúkrunarfræðideildir háskólanna í landinu, aðrar deildir háskólanna, sem og aðrar mennta- og rannsóknarstofnanir.
Diplóma nám í hjúkrun fullorðinna (hjúkrun hjarta- og lungnasjúklinga, hjúkrun aðgerðasjúklinga og hjúkrun gjörgæslusjúklinga). Fagdeildin tók þátt í undirbúningi þessarar námsleiðar.
Nokkrir hjúkrunarfræðingar hafa lokið eða eru að ljúka meistaranámi / diplómanámi í hjúkrun með áherslu á hjúkrun lungnasjúklinga. Einn hjúkrunarfræðingur hefur lokið doktorsprófi.
Nánari upplýsingar má finna um námið á heimasíðum Hjúkrunarfræðideildar HÍ og Heilbrigðisdeildar HA
Rannsóknir og þróunarstörf innan lungnahjúkrunar hafa eflst mjög á undanförnum árum. Hefur það átt sér stað með auknum rannsóknum á hjúkrun lungnasjúklinga samhliða auknu framboði af framhaldsnámi fyrir hjúkrunarfræðinga.
Hjúkrun lungnasjúklinga spannar mjög vítt svið. Hjúkrunin fer fram m.a. á bráðalegudeildum, á endurhæfingarstofnunum, á göngudeildum og í heimahúsum að ógleymdri þeirri þjónustu sem veitt er í gegnum síma.
Norrænar fagdeildir hafa með sér óformlegt samstarf á milli þess sem norræna lungnaráðstefnan er haldin á 2 ára fresti. Á þeirri ráðstefnu er fundur formanna fagdeildanna og er fundurinn liður í því að stuðla að góðu samstarfi landa á milli.