Stefna
INNGANGUR
Fagdeild öldrunarhjúkrunarfræðinga tekur undir heildarstefnu Fíh í hjúkrunar- og heilbrigðismálum og telur hún hana taka mið af breyttum aðstæðum og þörfum aldraðra í íslensku samfélagi.
BREYTT SAMFÉLAG
Breytingar á fjölskyldumynstri og atvinnuþátttöku kvenna hafa haft áhrif á aldraða sem flestir bjuggu áður í skjóli fjölskyldu til lísloka. Síðustu ár hafa stofnanir tekið að miklu leyti við því hlutverki að hlú að hinum aldraða á ævikvöldi hans. Auknar kröfur samfélagsins og sístækkandi hópur aldraðra gerir það að verkum að við þurfum fleiri og betri úrræði til handa þessum hópi ásamt því að styrkja þau úrræði sem við þegar höfum. Aldraðir í okkar samfélagi eru margbreytilegur hópur með mismunandi þarfir og verður þjónustan ætíð að taka mið af einstaklingunum en ekki hentugleika heilbrigðiskerfisins hverju sinni.
HJÚKRUN
Stefnan í öldrunarhjúkrun skal vera;
# stuðla að bættri hjúkrun aldraðra og að hún sé veitt af faglegri þekkingu
# stuðla að aukinni fræðslu og forvörnum fyrir aldraða
# hvetja til stöðugs umbótastarfs og gæðastjórnunar á öllum stigum öldrunarþjónustu
HUGMYNDAFRÆÐI
Eftirtalin atriði eru megininntakið í hugmyndafræði öldrunarhjúkrunar;
# styðja hinn aldraða til sjálfshjálpar og gera honum kleift að lifa því lífi sem honum er
eiginlegt og öðlast lífsfyllingu þrátt fyrir fötlun eða sjúkdóm
# styðja aðstandendur í þeirra hlutverki sem stuðnings- og/eða umönnunaraðilar
# skipulagning og markmiðasetning öldrunarþjónustu sé til þess gerð að tryggja lífsgæði
og velferð hins aldraða
# öldrunarþjónustan miði að því að hvetja hinn aldraða til sjálfshjálpar og veita honum
hjálp við að uppfylla þær þarfir sem stuðla að heilbrigði og vellíðan og hann er ekki fær
um að uppfylla sjálfur
# við alla skipulagningu skal virða sjálfsákvörðunarrétt hins aldraða allt til lífsloka og
hafa samráð við hann og fjölskyldu hans
# umönnun, aðstoð og/eða meðferð skal veitt á því þjónustuformi sem best mætir vilja og
þörfum einstaklingsins
# hinum aldraða skal gert kleift að vera heima eins lengi og hann getur og óskar eftir og
skal hann þá njóta þeirrar þjóinustu sem hann þarfnast
# sé þörf fyrir stofnanavist skal gera einstaklingnum kleift að búa þar til lífsloka
# stuðla ber að friðsælum dauðdaga og virða rétt hins aldraða þar um. Stofnanir setji sér
leiðbeiningar um takmörkun á meðferð og ræði slíkt við hinn aldraða og fjölskyldu
hans í tíma
HJÚKRUNARFRÆÐINGURINN
Hjúkrunarfræðingurinn starfar m.a. með teymi heilbrigðisstarfsfólks og sérfræðingum í faggreinum er tengjast öldrunarfræðum, þar sem allir vinna í sameiningu að velferð hins aldraða. Starf teymisins leiði hjúkrunarfræðingur eða læknir og skal teymið hafa nana samvinnu við hinn aldraða og fjölskyldu hans.Teymið skal stuðla að nákvæmri og aðgengilegri skráningu upplýsinga í öldrunarþjónustu ásamt tölvuskráningu þar sem allir fagaðilar geti nýtt sér upplýsingagrunn. Gæta skal fyllsta öryggis og trúnaðar um einkamál einstaklinga.
ÞEKKING
Stuðla skal að tengslum við öldrunarhjúkrunarfræðinga í öðrum löndum, koma á og viðhalda samstarfi faginu til framdráttar og nýta samanburð milli landa til jákvæðrar framþróunar.
Hvetja skal til rannsókna í öldrunarhjúkrun og öðrum faggreinum öldrunarfræða hérlendis og fylgjast með nýjungum í þeim tilgangi að bæta meðferð og umönnun.
MENNTUN
Stefnt skal að því að glæða áhuga hjúkrunarfræðinga á öldrunarhjúkrun og stuðla að frekari menntun í greininni. Nauðsynlegt er að í boði sé M.S.nám í öldrunarhjúkrun.
Stuðla ber að samvinnu öldrunarþjónustu og öldrunarstofnana við háskóla í tengslum við menntun fagstétta og rannsóknarvinnu. Mikilvægt er að styðja hjúkrunarfræðinga í sí- og endurmenntun og nýta þá reynsluþekkingu sem til staðar er í faginu og er ekki síður mikilvæg en fræðileg þekking.
Rækta ber samband við skóla sem mennta starfsstéttir til starfa í öldrunarþjónustu og lögð skal áhersla á símenntun fag- og starfsstétta er vinna við umönnun og meðferð aldraðra.