Forsíða / Deildir Fíh / Fagdeildir / Öldrunarhjúkrun / Starfsreglur
Starfsreglur

1.gr.
Nafn fagdeilar er:
Fagdeild öldrunarhjúkrunarfræðinga innan Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga.
Heimili og varnarþing er í Reykjavík en umdæmið er allt landið.

2.gr.
Markmið fagdeildarinnar er:
-að vera stjórn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og nefndum til ráðgjafar í öllu er snýr að öldrunarhjúkrun
-að stuðla að bættri hjúkrun aldraðra og að hún sé veitt af faglegri þekkingu
-að stuðla að aukinni fræðslu og forvörnum fyrir aldraða
-að glæða áhuga hjúkrunarfræðinga á öldrunarhjúkrun og stuðla að frekari menntun í greininni
-að stuðla að tengslum við öldrunarhjúkrunarfræðinga í öðrum löndum
-að hvetja til rannsókna í öldrunarhjúkrun og fylgjast með nýjungum
-að stuðla að bættri þjónustu við aldraða í samvinnu við aðrar starfsstéttir

3.gr. 
Félagar geta orðið þeir félagsmenn innan Fíh sem hafa sérfræðingsleyfi eða
viðbótarmenntun í öldrunarhjúkrun og allir þeir hjúkrunarfræðingar sem starfa við greinina.
Aðrir hjúkrunarfræðingar sem þess óska skulu sækja um inngöngu til stjórnar

4.gr. 
Stjórn deildarinnar skal kosin á aðalfundi til tveggja ára í senn.
Hana skipa 5 menn og 2 til vara. Formaður skal kosinn sérstaklega en að öðru leyti skipti stjórn sjálf með sér verkum. Enginn má sitja lengur í stjórn en 3 kjörtímabil í senn, nema sem varamaður.
Að minnsta kosti einn stjórnarmeðlimur skal hafa lokið viðbótar- eða framhaldsnámi í öldrunarhjúkrun.

5.gr.
Aðalfund skal halda í febrúar eða mars ár hvert. Hann skal boða með skriflegu fundarboði með minnst 2ja vikna fyrirvara. Aðalfundur er lögmætur sé löglega til hans boðað.

6.gr. 
Dagskrá aðalfundar skal vera sem hér segir;
1.kosning fundarstjóra og fundarritara
2.skýrsla stjórnar
3.endurskoðaðir ársreikningar lagðir fram
4.endurskoðun markmiða deildarinnar
5.árgjald ákveðið
6.kosning stjórnar skv. 4. gr.
7.kosning 2ja endurskoðenda
8.önnur mál
 
7.gr. 
Starfsreglum þessum má aðeins breyta á aðalfundi og skulu skriflegar tillögur um breytingar á starfsreglum berast stjórn með minnst 3 vikum fyrir aðalfund.
Tillögur um breytingar á starfsreglum skulu fylgja fundarboði.


 



Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi