Forsíða / Deildir Fíh / Fagdeildir / Skurðhjúkrun

Fagdeild skurðhjúkrunarfræðinga

Fagdeild skurðhjúkrunarfræðinga var formlega stofnuð 25. apríl 1994, félagsmenn eru 132 talsins.

Skurðhjúkrunarfræðingar hafa á undanförnum árum aðhyllst notkun hjúkrunarferlis á skurðstofu.  Það byggir á hugmyndum um heildræna hjúkrun sem skipt er í þrjú tímabil, fyrir, í og eftir skurðaðgerð.  Það felur í sér mismunandi hjúkrunarmeðferðir sem m.a. vernda sjúklinginn fyrir áhættuþáttum og miða að því að ná hámarksárangri.  Notkun þess stuðlar að markvissari hjúkrun og  eykur hæfni hjúkrunarfræðinga til að þróa og bæta hjúkrun á skurðstofu.  Starfshópur skurð- og svæfingahjúkrunarfræðinga hefur að undanförnu unnið við undirbúning skráningar hjúkrunar samkvæmt NANDA og NIC.

Fjölbreytileiki verkefna skurðhjúkrunarfræðinga skýrist m.a. af breiðum sjúklingahóp, fjölda einataklingsmiðaðra hjúkrunarmeðferða,  þátttöku í ólíkum skurðaðgerðum, og notkun flókins tækjabúnaðar.   Starfið byggir á teymisvinnu þar sem margar starfsstéttir vinna að sama markmiðinu.  Skurðhjúkrun er í stöðugri þróun í takt við síbreytilegar þarfir samfélagsins og þróun í skurðhjúkrun og skurðlækningum.  Símenntun er nauðsynleg og hafa skurðhjúkrunarfræðingar haft tök á að sækja ráðstefnur og fylgjast vel með því sem er að gerast.

 

Markmið hjúkrunar á skurðstofu er

  • Að veita sjúklingum árangursríka hjúkrun sem mætir einstaklingbundnum þörfum og tryggir velferð þeirra á aðgerðarferlinu
  • Að koma í veg fyrir fylgikvilla og stuðla að jákvæðum árangri aðgerðarinnar.

 

Hvað finnst skurðhjúkrunarfræðingum gera skurðhjúkrun áhugaverða.

  • Dagvinna.
  • Spennandi, fjölbreytt og áhugavert starf
  • Þverfagleg samvinna.
  • Möguleiki á að þróa sig í stafi og stunda símenntun.
  • Örar breytingar og framfarir.
  • Sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Góður möguleiki á að fá vinnu erlendis.
  • Góðir tekjumöguleikar vegna bakvakta og yfirvinnu.

  

Helstu ráðstefnur skurðhjúkrunarfræðinga:

Haustráðstefna fagdeildar skurðhjúkrunarfræðinga,  ISORNA á Íslandi á hverju ári.

EORNA, evrópuráðstefna sem haldin er þriðja hvert ár, næsta ráðstefna verður haldin í Dublin á Írlandi 25-28 maí 2006.

AORN, ráðstefna bandarísku skurðhjúkrunarfræðinganna sem haldin er árlega að vori.

NORNA, norræna ráðstefnan sem nú er haldin í fyrsta sinn í Uppsala í Svíþjóð 27. - 28 maí 2005.

AORN, heimsþing skurðhjúkrunarfræðinga haldið í Barcelona í september 2005.

NATN, ráðstefna bresku skurðhjúkrunarfræðinganna í Harrogate á Englandi sem haldin er árlega í október.

 

Fagdeild skurðhjúkrunarfræðinga ISORNA er aðili að og á fulltrúa í samtökum norrænna skurðhjúkrunarfræðinga NORNA og Evrópusamtökum skurðhjúkrunarfræðinga EORNA.  Þessi samtök vinna að þróun fagsins, svo sem gæðamálum, vinnuumhverfi, menntun, skipulagningu ráðstefna og stuðla að rannsóknum á sviði skurðhjúkrunar.

EORNA hefur hafið samstarf við International Federation of erioperative Nursing (IFPN).  Fyrsta sameiginlega verkefnið er gerð gæðastaðla varðandi umgengnisreglur við HIV smitaða einstaklinga.

 

Skurðhjúkrunarmenntun.

Skurðhjúkrunarnám hefur verið í boði reglulega og er stöðug eftirspurn eftir hjúkrunarfræðingum með þessa menntun.  Í febrúar 2005 lauk 30 eininga diplómanámi í skurðhjúkrun á meistarastigi í samvinnu hjúkrunardeildar Háskóla Íslands og Landspítala -háskólasjúkrahúss.  Stefnt er að því að hefja sambærilegt  nám innan tveggja ára.

 Viðbótarnám í skurðhjúkrun er ennþá ekki sett sem skilyrði fyrir ráðningu á skurðstofur LSH. 

 

Starfsemi fagdeildarinnar.

Fagdeildin heldur stjórnarfundi mánaðarlega.

Skipuleggur og stendur fyrir vorfundi í maí og ráðstefnu á haustin.

Gefur út fréttabæklinginn Nálahaldarann tvisvar á ári.

Tekur þátt í skipulagningu náms í skurðhjúkrun með því að vera með fulltrúa í menntanefnd.

Fagdeildin á fulltrúa í stjórn  NORNA og EORNA.



Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi