Forsíða / Deildir Fíh / Fagdeildir / Svæfingarhjúkrun / Reglur fagdeildarinnar

Reglur fagdeildar svæfingahjúkrunarfræðinga

 

1.Fagdeild svæfingahjúkrunarfræðinga (FS) er deild innan Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga (FÍH) og fylgir starfsreglum FÍH.

2.      Tilgangur fagdeildarinnar er: 

    • að vinna að framgangi svæfingahjúkrunar og að stuðla að bættri menntun svæfingahjúkrunarfræðinga.
    • að vinna að hagsmunamálum svæfingahjúkrunarfræðinga m.a. varðandi stöðuveitingar og kjaramál.
    • að auka samstarf svæfingadeilda í landinu og leita eftir samstarfi við félög svæfingahjúkrunarfræðinga í öðrum löndum.

3.Félagar geta verið þeir sem hafa sérfræðingsleyfi eða viðbótarmenntun í svæfingahjúkrun og eða þeir sem starfa við sérgreinina svo fremi sem þeir eru félagar innan FÍH.

4.Einkennismerki FS er blár skjöldur með gulu “gnægtarhorni” og þremur stjörnum.  Skal það notað jafnhliða merki FÍH.

5.      Aðalfundur skal haldinn ár hvert, að öllu jöfnu fyrir 1. apríl.  Aðalfundur skal boðaður skriflega til allra félagsmanna fagdeildarinnar með amk. 2ja vikna fyrirvara og er hann þá lögmætur.

6.      Dagskrá aðalfundar skal vera:

    • Fundargerð síðasta aðalfundar lögð fram.
    • Ársskýrsla stjórnar.
    • Ársreikningar.
    • Kjör stjórnar sbr. lið 7.
    • Kjör ráðstefnunefndar sbr. lið 8
    • Kjör menntanefndar sbr. lið 9
    • Inntaka nýrra aðila að FS.
    • Árgjald ákveðið.
    • Önnur mál

7.      Stjórn FS skal skipuð stjórn fjórum mönnum þ.e. formanni, gjaldkera, ritara og meðstjórnanda.  Í kjöri til stjórnar geta verið allir félagsmenn FS með sérnám í svæfingahjúkrun.  Framboð til stjórnarkjörs nægir að leggja fram á aðalfundi og skal kosning vera skrifleg ef um fleiri en einn frambjóðanda er að ræða.  Stjórn er kosin til eins árs, endurkosning er heimil. Þó skal a.m.k. einn stjórnarmaður ganga úr stjórn á 3ja ára fresti.  Aldrei skulu þó fleiri en tveir ganga úr stjórn í einu.

8.      Ráðstefnunefnd skal skipuð a.m.k. þremur mönnum. Kosið er til eins árs, endurkosning er heimil. Þó skal a.m.k. einn maður ganga úr ráðstefnunefnd á 3ja ára fresti. Aldrei skulu þó fleiri en tveir ganga úr nefndinni í einu. Hlutverk ráðstefnunefndar er að sjá um og skipuleggja árlega ráðstefnu Fagdeildarinnar. Stjórn FS skal skipuleggja jólafundinn.

9.      Menntanefnd skal sipuð 5-9 mönnum.  Einn úr stjórn situr í menntanefnd og er tengiliður.  Menntanefndin hefur umsjón með skipulagningu sérnáms í svæfingahjúkrun.  Formaður menntanefndar ákveður hve margir skulu vera í nefndinni.

10.  Afgreiðslu mála á aðalfundi ræður einfaldur meirihluti.

11.  Eftir hvern aðalfund skal stjórn senda út ársskýrslu og innheimta félagsgjöld.

12.  Fréttablað FS “Svæfillinn” er gefinn út þrisvar til fjórum sinnum á ári.

13.  Reglum þessum má einungis breyta á aðalfundi og skulu skriflegar breytingatillögur berast stjórn a.m.k. einni viku fyrir aðalfund.  Reglur þessar eru vinnureglur, sem fagdeildin setur en lýtur a.ö.l. lögum FÍH.

 



Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi