|
Aðalfundarboð 2009 Fagdeild taugahjúkrunarfræðinga |
Ágæti félagi
Aðalfundur Fagdeildar taugahjúkrunarfræðinga verður haldinn miðvikudaginn
25. nóvember 2009 kl. 18.00 í fundarsal Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga að Suðurlandsbraut 22, Reykjavík. Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt starfsreglum deildarinnar ásamt kynningu á græðandi kremum.
18.00 Dagskrá aðalfundar:
1. Kosning fundarstjóra og fundarritara
2. Ársskýrsla stjórnar
3. Endurskoðaðir ársreikningar lagðir fram
4. Kosning stjórnar, samkvæmt 6. gr. í starfsreglum fagdeildarinnar skal kjósa 1 stjórnarmann á þessum fundi
5. Kosning 2ja endurskoðenda
6. Árgjald ákveðið
7. Önnur mál
Athugið að tillögur um breytingar á starfsreglum fagdeildarinnar þurfa að berast stjórn skriflega eigi síðar en viku fyrir aðalfund.
Volare býður fram vörur húðsjúkdóma- og lyfjafræðingsins Dr. David Melumad en hann er einnig með doktorspróf í lyfjaefnafræði. Hann er þekktur vísindamaður í heimalandi sínu og hefur skrifað mikið fyrir alþjóðlegar vísindastofnanir í húðsnyrtingu og lyfjafræði. Hann er einnig sá fyrsti sem sameinar Aloe vera gel og fjársjóði Dauðahafsins í húð og hárlínu en fyrir þá línu fékk hann Gullstjörnuverðlaunin árið 1996.
Dórothea Bergs, formaður Dorothea@landspitali.is
Sólveig Haraldsdóttir, varaformaður solvhar@landspitali.is
Inga S. Guðbjartsdóttir, ritari Ingasg@landspitali.is
Judith Penrod, gjaldkeri judithap@landspitali.is
Jónína Hallsdóttir, varamaður johalls@landspitali.is
Theodóra Frímann, varamaður theodfri@landspitali.is
Allir sem hafa áhuga á taugahjúkrun og starfsemi fagdeildarinnar eru velkomnir á fundinn. Þeir sem ekki eru nú þegar í Fagdeildinni geta gengið í hana á fundinum. Vonum að sem flestir sjái sér fært um að mæta.
Kveðjur frá stjórn Fagdeildar taugahjúkrunarfræðinga