1. gr.
Nafn fagdeildar er: Fagdeild taugahjúkrunarfræðinga og starfar hún innan Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga.
2. gr.
Heimili og varnarþing fagdeildar taugahjúkrunarfræðinga er í Reykjavík, en umdæmið er landið allt.
3. gr.
Markmið fagdeildar taugahjúkrunarfræðinga eru:
4. gr.
Stofnfélagar eru 35 hjúkrunarfræðingar: sjá fylgiskjal 3
5. gr. Félagsaðild
Félagar geta orðið allir hjúkrunarfræðingar innan Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga sem starfa við hjúkrun sjúklinga með sjúkdóma eða áverka í mið-og úttaugakerfi. Aðrir hjúkrunarfræðingar sem óska skulu sækja um inngöngu til stjórnar fagdeildar taugahjúkrunarfræðinga.
Taugahjúkrunarfræðingar starfa við hjúkrun einstaklinga með sjúkdóma eða áverka í taugakerfi, s.s. heila og mænu. Þeir starfa á taugalækningadeildum, á heila-og taugaskurðdeildum og við endurhæfingu einstaklinga með sjúkdóma og áverka í mið- og úttaugakerfi. Við fræðslu, kennslu og rannsóknir á sviði taugasjúkdóma. Við hjúkrun barna með sjúkdóma eða áverka í mið- og úttaugakerfi.
6. gr.
Stjórn fagdeildarinnar skipa 5 félagsmenn: formaður, varaformaður, ritari, gjaldkeri
einn meðstjórnandi og tveir varamenn. Stjórn fagdeildarinnar skal kosin á aðalfundi og sitja tvö ár í senn. Skulu 2 stjórnarmenn ganga út annað árið en 3 hitt. Einfaldur meirihluti ræður kjöri.
Aðalfundur skal haldinn í október ár hvert. Aðalfund skal boða skriflega með tveggja vikna fyrirvara hið minnsta. Aðalfundur er löglegur sé löglega til hans boðað.
Dagskrá aðalfundar:
1. Ársskýrsla stjórnar
2. Endurskoðaðir ársreikningar lagðir fram
3. Kosning stjórnar skv. 6. gr.
4. Kosning 2ja endurskoðenda.
5. Árgjald ákveðið.
6. Önnur mál.
8. gr. Önnur ákvæði
Athugasemd við 6. gr.
- Kosningar.
Leitast skal við að skipa stjórn fagdeildarinnar þannig, að hver starfsstöð taugahjúkrunarfræðinga sem aðildeiga að fagdeildinni eigi sinn fulltrúa í stjórn verði því við komið.
- Fræðsla
Halda skal málþing eða námsstefnur ekki sjaldnar en annað hvert ár.
- Starfsnefndir
Skipa skal starfsnefndir eftir því sem þörf er á.
- Árgjald
Ákveðið var að árgjald skyldi vera 1.500kr.
9. gr.
Starfsreglum þessum má aðeins breyta á aðalfundi og skulu skriflegar tillögur um breytingar á reglum berast stjórn 1 viku fyrir aðalfund. Sama gildir um ákvörðun um slit fagdeildarinnar sem verður tekin á aðalfundi með einföldum meirihluta félagsmanna og renna eignir þess þá til Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga.
Starfsreglur þessar voru samþykktar á stofnfundi fagdeildar taugahjúkrunarfræðinga í Reykjavík 18. nóvember 2004