Forsíða / Deildir Fíh / Fagdeildir / Taugahjúkrun / Taugasjúkdómar

Taugasjúkdómafræði -  sjúkdómar í mið- og úttaugakerfi.

 

Taugakerfið:

·        Er flókið líffærakerfi sem stjórnar allri starfsemi líkamans.

·        Vinnur úr taugaboðum sem berast því.

·        Stjórnar sjón, hugsun, mynni og tali.

·        Stjórnar starfsemi innri líffærakerfa svo sem innkirtlastarfsemi, meltingu, öndun, kynfærum, blóðrás og þeim þáttum sem hafa með efnaskipti líkamans að gera.

·        Stjórnar hreyfingum líkamans.

 

Taugakerfið skiptist í miðtaugakerfið þ.e.a.s. heila og mænu og úttaugakerfi sem samanstendur af heila- og mænutaugum.

 

Ennfremur skiptist taugakerfið í sjálfráða taugakerfið og ósjálfráða taugakerfið.

 

Sjálfráða taugakerfið tekur til viljastýrðra athafna svo sem hreyfingar, kyngingar o.fl.

 

Ósjálfráða taugakerfið tekur hins vegar til þeirrar starfsemi líkamans sem manneskjan þarf ekki að hugsa fyrir svo sem blóðrásar, meltingar, o.fl.

 

Einkennin sem koma fram við skemmd í heila vísa til brottfalls þeirrar starfsemi sem á sér stað í þeim hluta heilans þar sem skemmdin verður.

 

Stóri heilinn

Er þróaðasti hluti heilans og skiptir í hægra og vinstra heilahvel, komi skemmd í hægra heilahvel koma fram brottfallseinkenni í vinstri líkamshelmingi.

Verði skemmd í hægra heilahvelisköpunargáfu helmingi heilans) geta eftirfarandi brottfallseinkenni sést:

·        Talörðugleikar, en orðaval og skilningur á tali annarra er í lagi.  Mál er venjulega í lagi.

·        Jafnvægisleysi.

·        Gaumstol (neglect).

·        Erfiðleikar við að rata.

·        Erfiðleikar við einbeitingu.

·        Viðbrögð geta orðið hægari.

·        Óraunsæi.

·        Minnkuð athyglisgáfa.

·        Minnkað minni varðandi nýjar upplýsingar.

·        Mismikil lömun í vinstri líkamshelmingi.

·        Aukin tilhneiging til þunglyndis.

 

Verði skemmd í vinstra heilahveli ( hinn röklegi heilahelmingur), geta eftirfarandi brottfallseinkenni sést:

 

·        Erfiðleikar við tjáningu og/eða að skilja talað mál og skrifa.

·        Erfiðleikar við orðaval og framburð.

·        Yfirleitt góð tilfinning varðandi líkamann.

·        Athyglisgáfa er eðlileg.

·        Hæfileiki til að nema ný atriði verður hægari.

·        Skortur á frumkvæði.

·        Aukin tilhneiging til þunglyndis.

·        Mismikil lömun í hægri líkamshelmingi.

 

Cerebellum – Litli heilinn.

Verði skemmd í litla heila krossast einkenni ekki og brottfallseinkenni koma fram sömu megin og skemmdin er.

Tekur þátt í að stjórna:

·        Jafnvægi.

·        Samhæfingu hreyfinga líkamans.

·        Vöðvaspennu í líkamanum.

 

Heilastofninn.

Tekur þátt í að stjórna:

·        Öndun og blóðrás.

·        Ógleði og uppköstum.

·        Svefni.

 

Mæna.

Tekur þátt í að stjórna:

·        þvag- og hægðalosun

·        Holdrisi og sáðláti.

·        Leiða tauga og skynboð til og frá heilanum.

 

Örfáar staðreyndir:

Hjá fullorðnum heilbrigðum einstaklingi er innihald höfuðkúpunnar:

·        u.þ.b. 1200 ml. heilavefur.

·        u.þ.b. 10 billion taugafrumur.

·        u.þ.b. 150 ml. mænuvökvi.

·        u.þ.b. 40-50 ml. blóðs.

 

Það er einmitt þetta sem stjórnar allri starfsemi líkamans!

 

Ekki er ennþá þekkt út í ystu æsar hver starfsemi heilans er en stöðugt verður til ný þekking á því sviði.  Búast má við miklum framförum á þekkingu og meðferð við hinum ýmsu taugasjúkdómum á næsta áratug.



Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi