Forsíða / Deildir Fíh / Fagdeildir / Þvagfærahjúkrun

Fagdeild tengd þvagfærahjúkrun

Bakgrunnur/ hugmyndarfræðin

Fagdeild hjúkrunarfræðinga tengd þvagfærahjúkrun var stofnuð haustið 1998. Fagdeildin hafði verið nokkur ár í fæðingu en hópur hjúkrunarfræðinga af LSH tók sig til og lét drauminn rætast. Á þessum deildum var kominn kjarni hjúkrunarfræðinga sem höfðu mikla reynsluþekkingu og metnað fyrir greinina.

Fyrsta verkefni fagdeildarinnar var norræn hjúkrunarráðstefna sem haldin var í Reykjavík í júní 1999. Í kjölfar ráðstefnunnar var stofnaður fagsjóður sem styrkir árlega meðlimi fagdeildarinnar til að sækja námskeið, ráðstefnur eða stunda rannsóknir.

Fagdeildin eru í tengslum við fagdeildir þvagfærahjúkrunarfræðinga á Norðurlöndum og er í samstarfi við EAUN (Europian Associasion of Urological Nurses), þar er nú verið að vinna öflugt starf um samhæfingu verklags og skilgreiningar menntunar þvagfærahjúkrunarfræðinga í Evrópu.

Hugmyndarfræði hjúkrunar þvagfærasjúklinga

  • Að veita einstaklingshæfða og heildræna hjúkrun sem byggir á grunnhugmyndarfræði hjúkrunar, nýjustu faglegri þekkingu og færni.
  • Að hjúkrunarþjónustan stefni að bættum lífsgæðum einstaklingsins og stuðli að forvörnum.
  • Að stuðla að velferð, vernda hagsmuni og rétt hvers einstaklings og vera málsvarar hans.
  • Að virða siðferðilega og lagalega skyldu okkar.

Starfið sjálft

Hjúkrun sjúklinga með sjúkdóma í þvagfærum er á flestum þjónustustigum innan heilbrigðiskerfisins. Hún er fjölbreytt og gefandi og skjólstæðingarnir eru á öllum aldri. Eftirspurn eftir þessari þjónustu fer vaxandi eftir því sem lífaldur hækkar og kröfur um lífsgæði aukast.

Algengasta krabbamein í körlum á Íslandi er krabbamein í blöðruhálskirtli og einnig er stór hluti sjúklinganna með önnur krabbamein í þvagfærum. Framfarir og tækni í meðferð þessara einstaklinga kemur til með að hafa mikil áhrif á hjúkrun þeirra í framtíðinni.

Menntun

Lítið hefur verið um framhaldsnám fyrir hjúkrunarfræðinga hér á landi en íslenskir hjúkrunarfræðingar hafa farið í nám erlendis til að auka þekkingu sína í hjúkrun sjúklinga með sjúkdóma í þvagfærum.

Rannsóknir sem hafa verið unnar í hjúkrun sjúklinga með sjúkdóma eða einkenni frá þvagfærakerfi:

Notkun NIC hjúkrunarmeðferða meðal hjúkrunarfræðinga á þvagfæradeildum Landspítala.
Umsjón Ásta Thoroddsen

Reynsla karla af brottnámi blöðruhálskirtils
Umsjón Kristín Björnsdóttir

Þvagincontinence
Umsjón Marga Thome

Þvagleki kvenna hjúkrunarmeðferð
Umsjón Margrét Gústafsdóttir

Þvagleki ungra kvenna
Umsjón Herdís Sveinsdóttir.



Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi