Forsíða / Deildir Fíh / Fagdeildir / Upplýsingatækni

Fagdeild um upplýsingatækni í hjúkrun

Fjölbreytileiki og tækifæri

Hvað er upplýsingatækni í hjúkrun?

Upplýsingatækni í hjúkrun stendur á grunni annars fræðasviðs, í þessu tilfelli hjúkrunarfræða. Þar við bætast hugvísindi, upplýsingafræði og tölvutækni sem fléttast saman. Innan hvers sviðs fer fram ákveðin starfsemi og við skörun þeirra allra verður til upplýsingatækni í hjúkrun. (Turley, 1997).

Hvað felst í starfinu?

Hlutverk þeirra sem starfa að upplýsingatækni í hjúkrun og í heilbrigðiskerfinu er að rannsaka uppbyggingu og meðferð hjúkrunar og heilbrigðisgagna. Á grundvelli þess fræðistarfs er hægt að hanna kerfi sem gera heilbrigðisstarfsfólki auðveldara að safna gögnum, vinna úr þeim upplýsingar og þróa nýja þekkingu sem styður bæði vinnuferli og fræðimennsku, ávallt með hag skjólstæðinga í huga.

Í starfi hjúkrunarfræðinga í upplýsingatækni felst m.a. :

  • Þverfagleg samvinna með öðru heilbrigðisstarfsfólki, tölvunarfræðingum, markaðsfræðingum,verkfræðingum og öðru samstarsfólki um ýmislegt sem lýtur t.d. að gagnaskráningu, gagnavinnslu, upplýsingamiðlun og samksiptum milli heilbrigðisstarfsfólks og milli heilbrigðisstarfsfólks og sjúklinga.
  • Þáttaka í hönnun, greiningu og þróun rafrænna sjúkraskrárkerfa.
  • Þáttaka í hönnun og þróun notendaviðmóta tölvukerfa sem notuð eru við heilbrigðisþjónustu.
  • Stuðningur við hjúkrunarfræðinga og aðrar heilbrigðisstéttir við að aðlagast nýjungum í skráningu og að taka upp nýjar aðferðir við skráningu og úrvinnslu gagna.
  • Símenntun á sviði nýjunga í upplýsingatækni á heilbrigðissviði, þ.m.t þáttöka á námskeiðum, ráðsstefnum, fundum, lestur tímarita, fylgjast með á póstlistum ofl.
  • Kennsla, t.d. í notkun hugbúnaðar í heilbrigðisþjónustu.
  • Fræðsla fyrir heilbrigðisstéttir um notagildi og notkunarmöguleika upplýsingatækni í heilbrigðiskerfinu.
  • Hönnun námsefnis sem tengist hugbúnaði, vinnslu heimasíðna fyrir Internetið og hjálparforrita.
  • Notkun upplýsingatækni til heilbrigðisfræðslu og heilsueflingar á vinnustað.
  • Notkun upplýsingatækni til heilbrigðisfræðslu fyrir sjúklinga og aðstandendur
  • Þróun nýjunga í heilbrigðisþjónustu s.s. í samskiptum sjúklinga við heilbrigðiskerfið
  • Hvar starfa hjúkrunarfræðingar í upplýsingatækni?
  • Starfsvettvangur getur verið bæði hjá opinberum aðilum eins og heilbrigðisyfirvöldum eða heilbrigðisstofnunum eða hjá einkafyrirtækjum s.s. hugbúnaðarhúsum, ráðgjafafyrirtækjum eða líftækni- og rannsóknarfyrirtækjum.

Hvaða menntun þurfa hjúkrunarfræðingar sem starfa við upplýsingatækni að hafa?

Viðbótarþekking á einhverju sviði upplýsingatækni er nauðsynleg. Í dag er auðvelt að afla sér viðbótarþekkingar á eigin vegum og með reynslu. Hjúkrunarfræðingar hafa líka aflað sér viðbótarþekkingar með því að sækja námskeið og ráðstefnur, fara í nám í tölvunar- eða kerfisfræðum, auk þess sem margir háskólar bæði í Evrópu og Norður Ameríku bjóða upp á meistaranám í upplýsingatækni í hjúkrun eða heilbrigðisþjónustu bæði á staðnum og í fjarnámi.

Hvar fæ ég meiri upplýsingar um þennan starfsvettvang?

Nánari upplýsingar um upplýsingatækni í hjúkrun og starfssvið hjúkrunarfræðinga í upplýsingatækni má finna á vefsíðu Fagdeildar um upplýsingatækni í hjúkrun: http://www.fagupp.is



Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi