Ráðstefna um rannsóknir í hjúkrun
Hótel Nordica í Reykjavík þann 22. til 23. nóvember
Ráðstefnunni er ætlað að endurspegla hið nýjasta í hjúkrunarfræði og rannsóknum á Íslandi árið 2007. Tekið verður við útdráttum sem endurspegla það. Auk rannsóknaverkefna er leitað eftir verkefnum sem endurspegla nýjungar í hjúkrun, klínísk viðfangsefni, stefnumótun, þróunarverkefni og önnur svið sem hjúkrunarfræðingar sinna. Tekið er á móti útdráttum rannsókna sem er enn ekki að fullu lokið, en sem lýkur fyrir ráðstefnuna þannig að niðurstöður eru kynntar.