Forsíða / Hjúkrun 2007 / Um ráðstefnuna
Ráðstefna um rannsóknir í hjúkrun

Ráðstefna um rannsóknir í hjúkrun verður haldin dagana 22 og 23 nóvember 2007 á Hótel Nordica, Suðurlandsbraut 2, Reykjavík.

Ráðstefnan er haldin í samvinnu Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, hjúkrunarfræðideildar Háskóla Íslands og hjúkrunarfræðibrautar heilbrigðisdeildar Háskólans á Akureyri.

Ráðstefnunni er ætlað að endurspegla hið nýjasta í hjúkrunarfræði og rannsóknum á Íslandi . Auk rannsóknarvekefna er leitað eftir verkefnum sem endurspegla nýjungar í hjúkrun, klínísk viðfangsefni, stefnumótun, þróunarverkefni og önnur svið sem hjúkrunarfræðingar sinna.

Tveir gestafyrirlesarar verða á ráðstefnunni, þær Dr. Sioban Nelson og Helga Sif Friðjónsdóttir. Nánari upplýsingar um þær og ferilskrár þeirra má finna undir liðnum fyrirlesarar.

Frestur til að skila útdráttum var til 10. júlí 2007

Frekari upplýsingar má fá með því að senda fyrirspurn á : gudgud@landspitali.is

Undirbúningsnefnd skipa Guðbjörg Guðmundsdóttir, Herdís Sveinsdóttir, Magnús Ólafsson og María Guðnadóttir.

Samstarfsaðili er Congress Reykjavík – ráðstefnuþjónusta ehf.



Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi