Vinnuhópar
1. Hjúkrun og heilbrigðisþjónustan
Hópstjórar: Vigdís Hallgrímsdóttir og Kristrún Þórkelsdóttir
Umræðupunktar:
1. Hvað vilja hjúkrunarfræðingar og hvað geta þeir tekið að sér innan heilbrigðisþjónustunnar..
2. Hvernig eiga hjúkrunarfræðingar að vera leiðandi í heilbrigðisþjónustunni?
3. Mismunandi rekstrarform innan heilbrigðisþjónustunnar - eru þar tækifæri fyrir hjúkrunarfræðinga og þá hvers konar? Hvað þarf til?
4. Heilsustefna Íslendinga og aðkoma hjúkrunarfræðinga.
2. Hlutverk hjúkrunarfræðinga til ársins 2020
Hópstjórar: Brynja Ingadóttir og Jónína Sigurgeirsdóttir
Umræðupunktar:
1. Hvernig sjá hjúkrunarfræðingar fyrir sér starf sitt og starfsmöguleika í náinni framtíð og hvernig vilja þeir sjá hjúkrun þróast til ársins 2020?
2. Hvert ætti hlutverk hjúkrunarfræðinga að vera á sjúkrahúsum, í heilsugæslu, í sjálfstæðum rekstri og víðar í framtíðinni?
3. Starfssvið hjúkrunarfræðinga:
- er það nægilega vel skilgreint?
- endurspegla starfslýsingar það réttilega?
- hvað um skörun við störf sjúkraliða og annars samstarfsfólks? Er þekking allra faghópa nýtt á sem bestan hátt?
- hvað um að endurskoða verkferla og vinnufyrirkomulag - er kominn tími á breytingar í þeim efnum?
3. Stjórnun - starfsumhverfi
Hópstjórar: Ragnheiður Alfreðsdóttir og Þórdís Borgþórsdóttir
Umræðupunktar:
1. Stjórnendur – leiðtogar í hjúkrun
- Hverjar eru skyldur hjúkrunarstjórnenda gagnvart almennum hjúkrunarfræðingum, starfinu og faginu?
- Leiðtogar í hjúkrun – hverjir eru þeir og hverja viljum við sjá sem leiðtoga hjúkrunarfræðinga og hjúkrunar.
2. Samskipti stjórnenda og almennra hjúkrunarfræðinga.
- Eru samskiptin byggð á gagnkvæmu trausti og virðingu?
- Eru þau góð eða slæm?
- Hafa þau breyst á undanförnum árum og þá hvernig og hvers vegna?
- Þarf að bæta samskiptin?
- Er upplýsingaflæði, samvinna og samráð milli aðila nægilegt?
- Er meint gjá milli þessara aðila staðreynd eða þjóðsaga?
3. Starfsumhverfi
- Hvernig er hægt að skapa umhyggjusamt, heilbrigt, öruggt, hvetjandi, styðjandi og auðgandi vinnuumhverfi fyrir hjúkrunarfræðinga.
- Er hægt að virkja stjórnendur betur í að bæta starfsaðstæður hjúkrunarfræðinga?
- Þurfa hjúkrunarstjórnendur að vera duglegri að setja mörk sem tryggja öryggi og vellíðan starfsmanna í stað þess að krefjast sífellt meiri vinnu af þeim og að þeir hlaupi hraðar?
- Standa vinnustaðir undir væntingum hjúkrunarfræðinga?
- Starfsþróun – í hverju felst hún og í hverju á hún að felast?
4. Hjúkrunarfræðingurinn í breyttu umhverfi
Hópstjórar: Linda Kristmundsdóttir og Hildur Magnúsdóttir
Umræðupunktar:
Hvers konar hjúkrunarfræðinga þarf fyrir breytt umhverfi heilbrigðisþjónustunnar.
1. Menntun hjúkrunarfræðinga:
- Hvers konar menntun þurfa hjúkrunarfræðingar fyrir nánustu framtíð?
- Hverjir eiga að stýra námi hjúkrunarfræðinga?
- Er menntunin í samræmi við stefnu í heilbrigðismálum, markaðinn og eftirspurn eftir þekkingu og færni hjúkrunarfræðinga?
- Þarf að endurskoða áherslur í menntun þeirra?
- Er námið nógu aðlaðandi/spennandi fyrir ungt fólk í dag?
- Hlutverk sérfræðinga í hjúkrun. Hvert er það núna og hvert ætti það að vera?
2. Ímynd hjúkrunar og hjúkrunarfræðinga:
- Hvers konar ímynd viljum við?
- Þarf að breyta henni í takt við ný tækifæri og aukið og breytt hlutverk hjúkrunarfræðinga?
- Er hægt að útbúa eina ímynd eða þarf margar?
- Hver er ímynd hjúkrunarfræðinga og hverjar eru afleiðingar hennar? Er t.d. verið að fá inn nemendur á röngum forsendum?
- Á að finna ný leiðarljós í stað hugur-hjarta-hönd? Ef svo er þá koma með tillögur.
3. Spáð er alvarlegri fækkun fólks á vinnualdri (fækkun fæðinga) í vestrænum löndum samfara fjölgun aldraðra og aukinni þörf fyrir hjúkrun. Hvernig undirbúum við okkur fyrir þessar breytingar?