Forsíða / Kjaramál / Desemberuppbót 2009
Desemberuppbót 2009 (persónuuppbót)

 

 

 

Skv. kjarasamningum Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og  ríkis, sjálfseignarstofnana og Reykjavíkurborgar:

Desemberuppbót á árinu 2009 skv. kjarasamningum ríkis, sjálfseignarstofnana og Reykjavíkurborgar er kr. 44.100

 

Hjúkrunarfræðingar sem starfar í fyrstu viku nóvembermánaðar skal fá greidda desemberuppbót 1. desember ár hvert miðað við fullt starf tímabilið 1. janúar til 31. október.  Hafi hjúkrunarfræðingur gegnt hlutastarfi eða unnið hluta úr ári, skal hann fá greitt miðað við starfhlutfall á framangreindu tímabili. 

 

Hjúkrunarfræðingur sem látið hefur af starfi verður þó að hafa skilað minnt 3ja mánaða starfi til að fá greidda desemberuppbót.

 

 

Skv. kjarasamningi Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og Launanefndar sveitarfélaga:

Desemberuppbót á árinu 2009 skv. kjarasamningi Launanefndar sveitarfélaga er kr. 61.509.

 

Hjúkrunarfræðingar skal fá greidda desemberuppbót 1. desember ár hvert miðað við fullt starf tímabilið 1. janúar til 30. nóvember.  Hafi hjúkrunarfræðingur gegnt hlutastarfi eða unnið hluta úr ári, skal hann fá greitt miðað við starfhlutfall á framangreindu tímabili, þó þannig að hann hafi starfað samfellt a.m.k. frá 1. september það ár. 

 

Hjúkrunarfræðingur sem látið hefur af starfi verður þó að hafa skilað minnt 6 mánaða starfi til að fá greidda desemberuppbót.

 

 

Dæmi um desemberuppbót hjá tímavinnufólki:

Hjúkrunarfræðingur í tímavinnu sem unnið hefur samtals 555 stundir á árinu.  Til að fá fulla desemberuppbót hefði hann þurft að vera búinn að skila 1504 vinnustundum.  Þar sem hann var búinn að skila 555 stundum fær hann hlutfall af desemberuppbótinni 555 / 1504 = 36,9%. Það þýðir að hjúkrunarfræðingur starfandi skv. kjarasamningi ríkis, sjálfseignarstofnana eða Reykjavíkurborgar fær kr. 16.272 og hjúkrunarfræðingur starfandi skv. kjarasamningi Launanefndar sveitarfélaga fær kr. 22.696


« Maí / 2012 »
SMÞMFFL
    01 02 03 04 05
06 07 08 09 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    
       



Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi