Forsíða / Kjaramál / Orlofsuppbót
Orlofsuppbót 2009

Skv. kjarasamningum Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og ríkis, sjálfseignarstofnana Reykjavíkurborgar og Launanefndar sveitarfélaga:

Orlofsuppbót á árinu 2009 skv. kjarasamningum ríkis, sjálfseignarstofnana, Reykjavíkurborgar og Launanefndar sveitarfélaga er kr. 25.200, miðað við fullt starf.

Hinn 1. júní ár hvert skal starfsmaður sem er í starfi til 30. apríl næst á undan fá greidda sérstaka eingreiðslu, orlofsuppbót, er miðast við fullt starf næstliðið orlofsár. Greitt skal hlutfallslega miðað við starfshlutfall og starfstíma.

Hafi starfsmaður látið af störfum á orlofsárinu vegna aldurs eða eftir a.m.k. 3 mánaða (13 vikna) samfellt starf á orlofsárinu, skal hann fá greidda orlofsuppbót hlutfallslega miðað við unninn tíma og starfshlutfall. Sama gildir ef starfsmaður var frá störfum vegna veikinda eftir að greiðsluskyldu stofnunar lýkur eða vegna fæðingarorlofs allt að 6 mánuðum.

Dæmi um orlofsuppbót hjá tímavinnufólki:

Hjúkrunarfræðingur í tímavinnu hefur unnið t.d. samtals 555 stundir á árinu. Til að fá fulla orlofsuppbót hefði hann þurft að vera búinn að skila 1.504 vinnustundum. Þar sem hann var búinn að skila 555 stundum fær hann hlutfall af orlofsuppbótinni eða 555 / 1.504 = 36,9%. Það þýðir að hjúkrunarfræðingur starfandi skv. kjarasamningi ríkis, sjálfseignarstofnana, Reykjavíkurborgar og launanefndar sveitarfélaga og vinnur samtals 555 st. á árinu fær kr. 9.299, í orlofsuppbót.


« Maí / 2012 »
SMÞMFFL
    01 02 03 04 05
06 07 08 09 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    
       







Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi