Háskólinn á Akureyri: Viltu læra meira ? Þverfaglegt Meistara- og Diplómunám í Heilbrigðisvísindum.
Umsóknarfrestur í meistara- og diplomunám í heilbrigðisvísindum er til 5. júní 2010.
Inntökuskilyrði er fullgilt háskólanám á sviði heilbrigðisvísinda og skyldra greina með að öllu jöfnu fyrstu einkunn frá viðurkenndri háskólastofnun.
Rafrænt umsóknareyðublað er aðgengilegt á vef HA á umsóknartíma sem er til 5. júní. Eingöngu er tekið við rafrænum umsóknum.
Umsækjendur geta fengið aðstoð við að fylla út og skila rafrænni umsókn og upplýsingar um námið hjá Láru Garðarsdóttur, skrifstofustjóra heilbrigðisvísindasviðs.
Opið er alla virka daga frá 8:00-16:00 í afgreiðslu skólans. Hægt er að senda fyrirspurnir á nemskra@unak.is.
Skrásetningargjald er kr. 45.000 fyrir skólaárið 2010-2011.
Upplýsingar um námið og handbækur fyrir þær áherslulínur sem eru í boði, er að finna á eftirfarandi slóð. http://www.unak.is/heilbrigdisvisindasvid/page/hd_diplmeist
Bæklingur um námið http://www.unak.is/static/files/Kynningarefni/2010/HA_HeilbrFrhv2.PDF