Orlofssjóður
Orlofsblað 2009
Upplýsingar um orlofssjóðinn gefur Soffía Sigurðardóttir í síma 540 6400 og soffia@hjukrun.is.
Úthlutun orlofsstyrkja og orlofshúsa er lokið fyrir sumarið 2009.
Búið er að úthluta orlofshúsum og orlofsstyrkjum fyrir sumarið 2009. Bréf hafa verið send til allra sem sóttu um. Í boði voru 350 orlofsstyrkir og 174 vikur í orlofshúsum. Alls bárust 953 umsóknir. Synjun fengu 446 félagsmenn.
Frestur til að ganga frá greiðslum fyrir orlofshúsin er til 1. maí n.k. eftir það verða þau hús sem ekki ganga út sett inn á orlofsvefinn og verður þar hægt að panta og ganga frá greiðslu. Fyrstur pantar - fyrstur fær.
Þó nokkrar fyrirspurnir koma á skrifstofuna varðandi fyrirkomulag á úthlutun, félagsmenn eru að spyrja eftir hverju er farið við úthlutunina.
Orlofssjóðurinn er með orlofsforritið Hannibal, sem úthlutar, skráir og heldur utan um allar úthlutanir allt frá sameiningu félaganna árið 1994. Félagsmaður í starfi hjá vinnuveitanda sem greiðir í Orlofssjóðinn, ávinnur sér 12 punkta á ári. Við hverja úthlutun þarf að greiða fyrir með punktum, ýmist 20 p. eða 30 p. eftir tímabilum.
Þeir félagsmenn sem nú eiga flesta punkta eiga 208 punkta.
Í þessari úthlutun þurfti félagsmaður að eiga 87 p. til að fá orlofsstyrk. Þeir félagsmenn sem áttu færri punkta fengu því ekki orlofsstyrk að þessu sinni. Orlofsstyrkirnir verða lagðir inn á bankareikning viðkomandi í Nýja Kaupþingsbanka, Hlemmi um mánaðarmótin maí/júní nk.
Skv. skattalögum eru orlofsstyrkir skattskyldir. Styrkþegi verður því að telja orlofsstyrkinn fram á skattframtali sínu, en Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga sendir út launamiða til styrkþega vegna þessa í lok ársins.
Synjun á pöntun orlofshúss, stafar af því að einhver annar félagsmaður var með fleiri punkta og sótti um sama orlofshús á sama tíma og var því með sterkari stöðu.
Ég minni þá sem fengu orlofshús á að ganga frá greiðslu á www.hjukrun.is undir liðnum Orlofssjóður – sjálfsafgreiðsla. Þegar komið er inn á síðuna þá er farið inn á liðinn Úthlutun og gefið upp úthlutunarnúmer sem kemur fram á bréfinu. Frestur til að greiða fyrir orlofshús/búð er til 1. maí.
Soffía Sigurðardóttir fulltrúi