Forsíða / Orlofssjóður / Hótelmiðar sumar

NÝTT
Gerður hefur verið samningur við Grand Hótel Reykjavík þess efnis að handhafar gistimiðanna okkar geta bókað gistingu í júlí og ágúst á Grand Hótel og greitt með 2 gistimiðum fyrir eina nótt eins og á Fosshótelum.Bókanir fyrir Grand Hótel berist beint til þeirra í síma 514 8000.

 

Hótelmiðar.
Til að kaupa hótelmiða er farið inn á www.hjukrun.is -> orlofssjóður -> sjálfsafgreiðsla.  

Einnig er hægt að kaupa hótelmiða á skrifstofu Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, sími 540-6400.

Gisting er bókuð í síma Fosshótela 562-4000 eða á netfangið bokun@fosshotel.is
Tekið skal fram að gisting sé greidd með gistimiða frá Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga

Hámarksfjöldi miða á hvern hjúkrunarfræðing er 8 miðar á ári.

Fosshótel








 


Fosshótel Baron
Barónsstígur 2-4 (við Skúlagötu), 101 Reykjavík
Sími: 562 3204, Fax 552 4425

Opið allt árið

Hver hótelmiði kostar: kr. 4.500,-
Aukagjald í júní er kr. 5.000,-
Í júlí og ágúst er greitt með 2 gistimiðum fyrir hverja nótt á öllum Fosshótelum.

Andvirði miðans er: kr. 14.000- yfir vetrartímann og frá kr. 22.900.- yfir sumartímann.

Verð á aukarúmi ásamt morgunverði er kr. 4.000.- (1 barn undir 12 ára aldri frítt í herbergi með foreldri/um)

Fosshótel Baron er 3ja stjörnu hótel sem er staðsett í hjarta Reykjavíkur, aðeins örfáum skrefum frá Laugaveginum og hinum skemmtilega göngustíg sem liggur meðfram sjónum.

Samtals eru 121 herbergi, studio og íbúðir, öll með sturtu/WC, síma, sjónvarpi og þráðlausri internettengingu. Á Fosshóteli Baron er morgunverðarsalur, lyfta, internetaðgangur í móttöku og frítt bílastæði. 

**********************************************************************************************************

Fosshótel Lind
Rauðarárstígur 18, 105 Reykjavík
Sími 562 3350 , Fax 562 3351

Opið allt árið

Hver hótelmiði kostar: kr. 4.500,-
Aukagjald í júní er kr. 5.000,-
Í júlí og ágúst er greitt með 2 gistimiðum fyrir hverja nótt á öllum Fosshótelum.

Andvirði miðans er: kr. 14.000- yfir vetrartímann og frá kr. 22.900.- yfir sumartímann.

Verð á aukarúmi ásamt morgunverði er kr. 4.000.- (1 barn undir 12 ára aldri frítt í herbergi með foreldri/um)

Fosshótel Lind er notalegt þriggja stjörnu ferðamannahótel. Staðsetning hótelsins er afbragð en það er nálægt Hlemmi og Laugavegi.

Það eru 55 eins og tveggja manna herbergi sem eru með sturtu/WC, flatskjársjónvarpi með innbyggðum DVD spilara, útvarpi og síma. Öryggishólf eru í sumum herbergjunum, en einnig í móttöku. Í boði er þráðlausa internettengingu.

**********************************************************************************************************

Fosshótel Suðurgata
Suðurgata 121, 101 Reykjavík
Sími 562 4018, Fax  562 4001

Opið  Júní - Ágúst

Hver hótelmiði kostar: kr. 4.500,-
Í júlí og ágúst er greitt með 2 gistimiðum fyrir hverja nótt á öllum Fosshótelum. 

Verð á aukarúmi ásamt morgunverði er kr. 4.000.- (1 barn undir 12 ára aldri frítt í herbergi með foreldri/um)

Andvirði miðans er: kr. 14.000- yfir vetrartímann og frá kr. 22.900.- yfir sumartímann.

Fosshótel Suðurgata er þægilegt 2ja stjörnu hótel. Það er staðsett á frábærum stað nálægt miðbænum, Reykjavíkurflugvelli, Þjóðminjasafninu og Háskóla Íslands. Margar skemmtilegar göngu- og hjólaleiðir eru í nágrenninu; meðfram sjónum, í Öskjuhlíðina, upp í Perlu og í Nauthólsvíkina svo eitthvað sé nefnt. Hótelið býður upp á einfalda, praktíska gistingu með 42 stórum herbergjum (28-30m ² ). Öll herbergin eru með sjónvarpi og svölum eða verönd. Hótelið og staðsetning þess eru mjög fjölskylduvæn.

**********************************************************************************************************

Fosshótel Reykholt
320 Reykholt í Borgarfirði
Sími 435 1260, Fax 435 1206

Opið allt árið

Hver hótelmiði kostar: kr. 4.500,-
Í júlí og ágúst er greitt með 2 gistimiðum fyrir hverja nótt á öllum Fosshótelum. 

Verð á aukarúmi ásamt morgunverði er kr. 4.000.- (1 barn undir 12 ára aldri frítt í herbergi með foreldri/um)

Andvirði miðans er: kr. 14.000- yfir vetrartímann og frá kr. 22.900.- yfir sumartímann.

Fosshótel Reykholt er menningartengt 3ja stjörnu ferðamannahótel sem byggir á þríþættu þema: norrænni goðafræði, íslenskum bókmenntum og klassískri tónlist.

Eftirfarandi tegundir herbergja eru í boði í Reykholti:

24 stór "Wellness" herbergi með baðkari.

29 herbergi með sturtu, eins manns og tveggja manna.

Fjölskylduherbergi.

Brúðarsvíta Freyju.

***********************************************************************************************************

Fosshótel Húsavík
Ketilsbraut 22, 640 Húsavík
Sími 464 1220, Fax 464 2161
Moby Dick Pub: Sími 464 1003

Opið allt árið

Hver hótelmiði kostar: kr. 4.500,-
Í júlí og ágúst er greitt með 2 gistimiðum fyrir hverja nótt á öllum Fosshótelum. 

Verð á aukarúmi ásamt morgunverði er kr. 4.000.- (1 barn undir 12 ára aldri frítt í herbergi með foreldri/um)

Andvirði miðans er: kr. 14.000- yfir vetrartímann og frá kr. 22.900.- yfir sumartímann.

Fosshótel Húsavík er vinalegt og vel búið, notalegt 3ja stjörnu ferðamannahótel. Hótelið er í hjarta Húsavíkur og í göngufæri við höfnina.

Á hótelinu eru 70 herbergi með eftirfarandi tegundum herbergja:

34 herbergi með tveimur einstaklingsrúmum eða einu hjónarúmi.

10 herbergi með sjávarsýn.

26 úrvals herbergi með “king size" rúmum.

Á hótelinu er rekinn veitingastaður og bar. Einnig er móttakan opin allan sólarhringinn og við hana er hægt að fá aðgang að interneti. Í húsinu eru sérhönnuð herbergi fyrir fatlaða og einnig er lyfta.

**********************************************************************************************************

Fosshótel Dalvík
Skíðabraut 18, 620 Dalvík
Sími 466 3395, Fax 466 3396

Opið allt árið.

Hver hótelmiði kostar: kr. 4.500,-
Í júlí og ágúst er greitt með 2 gistimiðum fyrir hverja nótt á öllum Fosshótelum. 

Verð á aukarúmi ásamt morgunverði er kr. 4.000.- (1 barn undir 12 ára aldri frítt í herbergi með foreldri/um)

Andvirði miðans er: kr. 14.000- yfir vetrartímann og frá kr. 22.900.- yfir sumartímann.

Fosshótel Dalvík er nýtt og þægilegt ferðamannahótel á góðum stað á Dalvík í Eyjafirði. Á hótelinu eru 25 herbergi með sturtu/salerni, sjónvarpi, síma, þráðlausri internet tengingu og útsýni yfir nálæg fjöll og firði. Auk þess býður hótelið upp á 7 herbergi með sameiginlegri sturtu- og/salernis aðstöðu auk sameiginlegs eldhúss sem að kemur sér vel fyrir svefnpokagistingar og þá sem vilja ferðast ódýrt.

**********************************************************************************************************

Fosshótel Laugar
650 Laugar
Sími 464 6300, Fax 562 4001

Opið Júní - Ágúst

Hver hótelmiði kostar: kr. 4.500,-
Í júlí og ágúst er greitt með 2 gistimiðum fyrir hverja nótt á öllum Fosshótelum. 

Verð á aukarúmi ásamt morgunverði er kr. 4.000.- (1 barn undir 12 ára aldri frítt í herbergi með foreldri/um)

Andvirði miðans er: kr. 14.000- yfir vetrartímann og frá kr. 22.900.- yfir sumartímann.

Fosshótel Laugar er notalegt 2/3 stjörnu ferðamannahótel, opið á sumrin. Á veturna er hluti hótelsins nýtt undir heimavist Framhaldsskólans á Laugum.

Herbergi án baðs og svefnpokapláss eru látlaus en herbergi með baði eru frekar rúmgóð.

Þar eru 50 herbergi með baði og síma, 22 herbergi án baðs og svefnpokapláss. Einnig er á hótelinu veitingastaður, bar, tveir morgunverðarsalir og innisundlaug.

*********************************************************************************************************
 
Fosshótel Vatnajökull
781 Hornafjörður
Sími 478 2555, Fax 562 4001

Opið Maí - September

Hver hótelmiði kostar: kr. 4.500,-
Í júlí og ágúst er greitt með 2 gistimiðum fyrir hverja nótt á öllum Fosshótelum. 

Verð á aukarúmi ásamt morgunverði er kr. 4.000.- (1 barn undir 12 ára aldri frítt í herbergi með foreldri/um)

Andvirði miðans er: kr. 14.000- yfir vetrartímann og frá kr. 22.900.- yfir sumartímann.

Fosshótel Vatnajökull er vinsælt og notalegt ferðamannahótel. Þar er að finna sjónvarpsstofu, bar og veitingastað með útsýni yfir jökulinn þar sem gott er að slaka á eftir ævintýri dagsins.

Öll herbergi, barir og veitingastaðir eru reyklaus svæði.

Eftirfarandi tegundir gistingar eru í boði á Fosshóteli Vatnajökli:

26 herbergi með baði, sjónvarpi og síma.

Herbergi með jökla-útsýni.

**********************************************************************************************************

Fosshótel Skaftafell
Freysnesi - 785 Öræfi
Sími: 478 1945, Fax : 478 1846

Opið Mars - Október

Hver hótelmiði kostar: kr. 4.500,-
Aukagjald í júní er kr. 5.000,-
Í júlí og ágúst er greitt með 2 gistimiðum fyrir hverja nótt á öllum Fosshótelum.

Andvirði miðans er: kr. 14.000- yfir vetrartímann og frá kr. 22.900.- yfir sumartímann.

Verð á aukarúmi ásamt morgunverði er kr. 4.000.- (1 barn undir 12 ára aldri frítt í herbergi með foreldri/um)

Fosshótel Skaftafell er huggulegt þriggja stjörnu ferðamannahótel á einum af fallegustu stöðum Íslands.

Fosshótel Skaftafell er umvafið jöklum með töfrandi útsýni yfir Hvannadalshnjúk, hæsta tind Íslands. Náttúran og landslagið umhverfis hótelið er stórbrotið og einstakt. Hótelið sem er við hringveginn, er í um 330 km frá Reykjavík, er mikil paradís fyrir náttúruunnendur.

Eftirfarandi tegundir gistingar eru í boði á Fosshóteli Skaftafelli:

63 einföld en góð hótelherbergi með sturtu/salerni, gervihnattasjónvarpi, síma og þráðlausri internettengingu.

Öll herbergin eru á jarðhæð í fjórum mismunandi byggingum með stórkostlegu jöklaútsýni.

********************************************************************************************************

Fosshótel Mosfell
Þrúðvangur 6, 850 Hella
Sími 487 5828, Fax 562 4001

Opið Júní - Ágúst

Hver hótelmiði kostar: kr. 4.500,-
Í júlí og ágúst er greitt með 2 gistimiðum fyrir hverja nótt á öllum Fosshótelum. 

Verð á aukarúmi ásamt morgunverði er kr. 4.000.- (1 barn undir 12 ára aldri frítt í herbergi með foreldri/um)

Andvirði miðans er: kr. 14.000- yfir vetrartímann og frá kr. 22.900.- yfir sumartímann.


Fosshótel Mosfell er 2/3 stjörnu ferðamannahótel með 35 herbergi með baði og 18 herbergi án baðs. Einnig er þar, morgunverðarsalur, setu- og sjónvarpsstofa,

aðgangur að interneti og ráðstefnusalur sem hentar mjög vel fyrir minni fundi, fyrirlestra og myndbandssýningar. Öll herbergi, barir og veitingastaðir eru reyklaus svæði.

*********************************************************************************************************

 


 



Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi