Forsíða / Orlofssjóður / Orlofspunktar og úthlutanir
Orlofspunktar og úthlutanir

Fyrirkomulag á úthlutun

Aðeins er hægt að sækja um á Orlofsvefnum undir liðnum Orlofssjóður - sjálfsafgreiðsla.

Í kjölfar úthlutunar orlofshúsa og orlofsstyrkja félagsins er alltaf nokkuð um fyrirspurnir frá félagsmönnum varðandi rétt til orlofshúsa og úthlutunarreglur. Því skal hér gerð nokkur grein fyrir helstu þáttum. Félagsmenn ávinna sér 12 orlofspunkta á ári. Orlofshúsin kosta 20 eða 30 punkta á viku eftir tímabili yfir sumartímann,  orlofsstyrkurinn kostar 30 punkta. Þess misskilnings hefur nokkuð gætt að til þess að eiga möguleika á orlofshúsi/orlofsstyrki þurfi menn að hafa áunnið sér eins marga punkta og það kostar. Svo er hins vegar ekki heldur fær sá úthlutað sem á inni flesta punkta miðað við hópinn sem sækir um dvöl á sama stað og á sama tíma. Þetta gildir einnig um úthlutun orlofsstyrkja.

Ekki er hægt að sjá fyrir fram hverjir fá úthlutað því þar ræður hvað marga punkta sjóðsfélagi á miðað við aðra umsækjendur.

Við stofnun orlofssjóðsins árið 1994 tók gildi punktakerfi sem úthlutað er eftir. Hver sjóðsfélagi, sem er aðili að sjóðnum, ávinnur sér 12 punkta á ári. Sjóðsfélagi er sá sem er starfandi, og vinnuveitandi eða hann sjálfur, sé hann sjálfstætt starfandi, greiði samningsbundin gjöld til sjóðsins. Eftirlaunaþegar njóta allra réttinda eins og starfandi félagar. Yngri sjóðsfélögum og þeim sem eiga fáa punkta skal bent á að mest aðsókn hefur verið í orlofsdvöl í júlí, því er auðveldara að fá úthlutað orlofsdvöl í júní og ágúst.

Fyrir hverja úthlutun eru dregnir frá punktar 2 punktar fyrir helgarleigu yfir vetrartímann og 20 eða 30 punktar fyrir vikuleigu yfir sumartímann.   Fyrri úthlutanir koma að sjálfsögðu til frádráttar hvort heldur hefur verið úthlutað orlofsstyrk eða orlofshúsi.



 



Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi