Forsíða / Saga hjúkrunar

"Saga hjúkrunar á Íslandi á 20 öld"

Þann 18. nóvember 2009 verða 90 ára liðin frá því að hjúkrunarfræðingar stofnuðu fyrsta félag hjúkrunarfræðinga hér á landi, Félag íslenskra hjúkrunarkvenna. Þeim tímamótum verður fagnað með ýmsum hætti í ár og efnt til sérstakrar afmælishátíðar í tengslum við ráðstefnu félagsins Hjúkrun 2009, sem haldin verður í nóvember næstkomandi.

 

Einn stærsti liður hátíðarhaldanna verður útkoma bókar um sögu hjúkrunar hér á landi á síðustu öld. Margrét Guðmundsdóttir sagnfræðingur hefur unnið að sögurituninni undanfarin ár og mun ljúka því verki í sumar. Bókin, sem verður um 600 blaðsíður að lengd, verður einstök heimild um þróun hjúkrunar hér á landi, um menntunarmál og félagsstörf hjúkrunarfræðinga, auk þess að bregða upp áhugaverðum og persónulegum myndum af lífi hjúkrunarfræðinga og hjúkrunarfræðinema fyrr á tímum. Stefnt er að því að bókin komi út snemma á árinu 2010

 

 



Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi