Forsíða / Starfsemi FÍH / Skrifstofa og stjórn / Starfsreglur stjórnar

Starfsreglur stjórnar Fíh


Markmið

Markmið reglna þessara er að tryggja jafnræði við meðferð mála, vandaða og óháða málsmeðferð og koma í veg fyrir hagsmunaárekstra í starfsemi félagsins.

 

Meðferð starfsreglna
Allir stjórnarmenn skulu fá eintak af starfsreglum sem í gildi eru er þeir taka sæti í stjórn félagsins. Þeim skal jafnframt afhent eintak af lögum félagsins. Starfsreglur stjórnar skulu teknar fyrir á öðrum stjórnarfundi nýrrar stjórnar. Stjórn getur hvenær sem er á starfstíma sínum endurskoðað og breytt starfsreglum sínum enda hljóti breytingin fylgi meirihluta stjórnar. Stjórnarmenn skulu staðfesta starfsreglurnar með undirritun sinni og skal frumrit þeirra varðveitt í húsakynnum félagsins.  Starfsreglurnar skulu gerðar félagsmönnum kunnugar á vefsvæði Fíh og endurskoðendum félagsins sent eintak þeirra.

 

Trúnaðareiður og þagnarskylda

Í upphafi starfstíma síns skulu stjórnarmenn allir undirrita eið um trúnað við félagið og þagnarskyldu.  Frumrit gagna þessara skulu vistuð í húsakynnum félagsins á öruggan hátt og afrit þeirra gerð aðgengileg félagsmönnum öllum á vefsvæði félagsins.  Þagnarskyldan helst þótt látið sé af stjórnarstarfi.

 

Meginverkefni stjórnar

24. gr. laga Fíh

Stjórnin fer með ákvörðunarvald í málefnum félagsins milli fulltrúaþinga og annast framkvæmd á ákvörðunum fulltrúaþinga og þeirri stefnumótun sem þar hefur verið ákveðin.

Stjórnin skal hlíta lögum þessum og sjá um að þeim sé framfylgt, og hafa hagsmuni félagsmanna og hjúkrunar að leiðarljósi.

 

25. gr. laga Fíh

Stjórnin skal hafa umsjón með rekstri félagsins og bera ábyrgð á eignum og fjárreiðum þess.  Formaður ber ábyrgð á daglegum rekstri félagsins og starfsmannahaldi gagnvart stjórn þess. Stjórnin skal sjá um að reikningar félagsins verði endurskoðaðir og að þeir liggi frammi til skoðunar eigi síðar en fjórum vikum fyrir fulltrúaþing.

Stjórnin tekur ákvarðanir um ráðningu starfsmanna til félagsins og semur um ráðningarkjör við þá.

 

Fundir stjórnar

Stjórn skal á fundum fjalla um allar ákvarðanir varðandi stefnumótun félagsins, en formaður skal annast daglegan rekstur í samræmi við stefnu stjórnar. Á vinnufundum stjórnar eru tekin fyrir málefni sem þarfnast sérstakrar athygli og eða stefnumörkunar.

Stjórnin skal halda fundi svo oft sem þurfa þykir, en fundar að jafnaði aðra hverja viku. Stjórn setur sér í upphafi kjörtímabils síns fundaáætlun, sem er endurskoðuð 3 mánuðum fyrir lok síðustu samþykktu fundaráætlunar.  Að jafnaði er gert ráð fyrir að fundir standi 2 klukkustundir og skal það sérstaklega tekið fram á fundarboði sé gert ráð fyrir lengri fundartíma. 

Stjórn heldur dagslanga vinnufundi 2-3 sinnum á ári.

Fundir stjórnar skulu að jafnaði haldnir á starfsstöð félagsins nema annað sé sérstaklega ákveðið af formanni eða stjórn.  Heimilt er að halda fundi stjórnar í gegnum síma eða með gagnaflutningi.

 

Boðun funda.

Formaður eða skrifstofa félagsins að beiðni hans boðar til fundar með viku fyrirvara. Heimilt skal þó ef ríkar ástæður eru fyrir hendi að boða stjórnarfund með skemmri fyrirvara.

Boða skal varamenn á stjórnarfundi.

Fundaráætlun misseris er jafnframt fundarboðun en nánari fundarboðun einstakra funda þar sem fram kemur fyrirhuguð dagskrá fundar skal send út 5 dögum fyrir boðaðan fund.  Málsgögn einstakra liða eru að jafnaði send út í pósti 5 dögum fyrir fund verði því við komið. Boðun á stjórnarfundi fer fram með vefpósti nema stjórn sjálf hafi ákveðið annað.  
Stjórnarmenn skulu snúa sér til formanns með óskir um að mál verði tekin á dagskrá stjórnarfunda.

Mál sem tekin eru upp á stjórnarfundum undir liðnum önnur mál og ekki hafa verið kynnt í fundarboði, skulu að jafnaði ekki afgreidd fyrr en á næsta fundi stjórnar.

 

Ályktunarhæfi stjórnarfunda

Fundir stjórnar eru ályktunarbærir þegar fimm eða fleiri stjórnarmenn sitja fund.  Varamenn hafa einungis atkvæðisrétt í forföllum aðalmanna.

Formaður stjórnar, og í fjarveru hans 1. varaformaður stjórnar, stýrir fundum.  Afl atkvæða ræður úrslitum kosninga og afgreiðslu mála á stjórnarfundum. Falli atkvæði jöfn ræður atkvæði formanns úrslitum.

 

Fundargerðir, fundarritun og fylgigögn

Halda skal gerðarbók um það sem fjallað er um á fundum stjórnar. Skulu bókanir vera skýrar og skal sérstaklega bóka allar samþykktir og ákvarðanir stjórnarinnar. Halda skal trúnaðarbók um þau mál á fundum stjórnar er varða mál einstakra félagsmanna.
Í fundargerðarbók skal skrá eftirfarandi.

  1. Hvar og hvenær fundurinn er haldinn.
  2. Hverjir sitja fundinn, hver stýrir honum og hver ritar fundargerð.
  3. Dagskráratriði, stutta lýsingu á dagskrárliðum og gögnum fundarins.
  4. Ákvarðanir sem teknar eru og atkvæðagreiðslur, ef til þeirra kemur.
  5. Sérstakar bókanir stjórnarmanna.
  6. Upphaf og lok fundartíma.
  7. Hvenær næsti stjórnarfundur verður haldinn.

Stjórnarmaður sem ekki er sammála ákvörðun stjórnar á rétt á að fá sérálit sitt skráð í gerðarbókina sem bókun. 

Ritari ritar fundargerð stjórnarfunda. Í fjarveru hans ritar einhver annarra stjórnarmanna fundargerð.  Fundargerðin skal, nema annað sé ákveðið, send öllum stjórnarmönnum innan 7 daga frá því að fundi lauk.

Fundargerðir eru lagðar fram til samþykktar í upphafi næsta stjórnarfundar og skal frumrit fundargerðarinnar áritað af öllum stjórnarmönnum, sem sitja þann fund er samþykkir fundargerðina.

Fundargerðir sem færðar hafa verið inn í fundargerðarbók teljast full sönnun þess sem gerst hefur á stjórnarfundum.

Frumrit fundargerðar- og trúnaðarbókar skulu varðveittar í húsakynnum félagsins og skulu þær vera aðgengilegar fyrir stjórnarmenn og endurskoðendur félagsins.  Fundargerðir stjórnar skulu gerðar aðgengilegar félagsmönnum með birtingu á vefsvæði félagsins. 

Í þeim tilvikum að um sérstaklega viðkvæm mál er að ræða, eða mál tengd miklum hagsmunum einstaklinga eða félaga, sem telja ber að séu ekki á vitund nema mjög fárra manna, getur formaður ákveðið að slík mál séu merkt sem "trúnaðarmál" áður en þau eru lögð fyrir stjórnarfund.  Mál sem merkt eru "trúnaðarmál" skulu ekki rædd við aðra en stjórnarmenn og málsaðila.  Sé mál merkt "trúnaðarmál" taka stjórnarmenn ekki með sér af stjórnarfundum eða úr húsakynnum félagsins, þau gögn sem lögð eru fram í málinu, né ræða málið við aðra en málsaðila.  Einfaldur meirihluti stjórnar getur ætíð ákveðið að mál sem merkt eru með þessum hætti skuli engu að síður sæta almennri málsmeðferð. Umfjöllun og niðurstaða stjórnar í málum sem merkt eru “trúnaðarmál” skal rituð í trúnaðarbók.


Um trúnaðarbók hefur stjórn ákveðið að gildi 9. gr. III kafla upplýsingalaga 1996 nr. 50. um aðgengi aðila að upplýsingum um hann sjálfan. Trúnaðarbók er jafnan opin stjórnarmönnum og endurskoðendum félagsins.

 

Stjórnarmönnum ber að varðveita þau gögn sem þeim er úthlutað þannig að aðgengi óviðkomandi aðila að gögnunum sé útilokað.  Um stjórnarmenn gildir 5 gr. laga Fíh en þar segir: “Ef félagsmaður, sem gegnt hefur trúnaðarstörfum fyrir félagið, lætur af trúnaðarstörfunum skal hann skyldur til þess að skila af sér til félagsins öllum gögnum varðandi trúnaðarstarfið innan tveggja vikna frá því að trúnaðarstörfum hans lýkur.”


Réttindi og skyldur stjórnarmanna

Stjórnarmaður er eingöngu bundinn af sannfæringu sinni, en ekki fyrirmælum þeirra sem hafa kosið hann.  Einstakir stjórnarmenn skulu ekki hafa afskipti af ákvörðunum um einstök viðskipti félagsins og skulu ekki koma fram sem umboðsaðilar annarra gagnvart félaginu.

 

Frestun máls að beiðni stjórnarmanns
Óski stjórnarmaður eftir frestun á afgreiðslu máls, skal sú almenna regla gilda, að frestað sé afgreiðslu til næsta fundar, enda sé a.m.k. vika milli funda.

 

Krafa um stjórnarfund

Ef þrír stjórnarmenn krefjast þess skriflega að haldinn sé stjórnarfundur til þess að taka fyrir eitthvert tiltekið mál skal formaður verða við þeirri beiðni innan þriggja sólarhringa. Sinni formaður ekki slíkri kröfu innan hins tilgreinda frests er þeim þremur sem settu fram kröfu um stjórnarfund heimilt að boða til fundarins með eins sólarhrings fyrirvara.

Það er réttur allra stjórnarmanna að fá afhent afrit allra samninga, skýrslna og athugana sem unnar eru fyrir félagið eða eru til umfjöllunar á þess vegum.  Þetta á þó ekki við ef regla um vanhæfi stjórnarmanns á við.  

 

Fundarseta og hæfi stjórnarmanna
Það er réttur stjórnarmanna, bæði aðal- og varamanna að sitja alla stjórnarfundi félagsins. 
Á stjórnarmann er lögð sú skylda að honum ber að víkja sæti við meðferð og afgreiðslu máls þegar það varðar hann eða nána venslamenn hans svo sérstaklega að almennt má ætla að viljaafstaða hans mótist að einhverju leyti þar af.
Stjórnarmenn eru ekki vanhæfir þegar verið er að velja fulltrúa til trúnaðarstarfa á vegum félagsins eða ákveða þóknun fyrir slík störf.
Stjórnarmenn sem jafnframt eru starfsmenn félagsins og hafa sem slíkir átt þátt í að undirbúa tiltekið mál sem lagt er fyrir stjórn eru alltaf vanhæfir þegar stjórnin fjallar um málið. Ákvæði þetta á þó ekki við um formann félagsins.  Þetta á  ekki við þegar stjórn fjallar um og afgreiðir fjárhagsáætlanir, ársreikninga eða lög félagsins.
Stjórnarmanni sem telur hæfi sitt orka tvímælis ber að vekja athygli á því. Honum er heimilt við meðferð máls sem hann er vanhæfur að afgreiða að gera stuttlega grein fyrir afstöðu sinni. Stjórn sker umræðulaust úr um hvort mál er svo vaxið að einhver stjórnarmanna sé vanhæfur. Stjórnarmaður sem hlut á að máli má taka þátt í atkvæðagreiðslu um hæfi sitt.
Stjórnarmaður sem vanhæfur er við úrlausn máls skal yfirgefa fundarsal stjórnar við meðferð og afgreiðslu þess.

 

Fundarseta annarra en stjórnarmanna
Stjórn ákveður hvort og hvenær aðrir starfsmenn félagsins sitja stjórnarfundi.  Formaður getur ákveðið að bjóða utanaðkomandi aðilum á stjórnarfundi til að kynna ákveðin mál er varða starfsemi félagsins eða aðila tengdum starfsemi þess. Seta slíkra aðila skal afmörkuð við þau tilteknu mál.

 

Seta í stjórnum, nefndum og ráðum
Stjórn tekur ákvörðun um setu stjórnarmanna Fíh í nefndum, ráðum og stjórnum þar sem félagið hefur fulltrúa.  Við slíka ákvörðun skal fjallað um ástæður þess að stjórnarmaðurinn taki slíkt sæti og áhrif stjórnarsetunnar á hlutverk viðkomandi stjórnarmanns í stjórn félagsins.

 

Ársskýrsla stjórnar
Í skýrslu stjórnar fyrir fulltrúaþing skal koma fram yfirlit um starfsemi félagsins á starfstímabilinu, svo og upplýsingar um atriði sem mikilvæg eru við mat á fjárhagsstöðu þess.

 

Verkaskipti
Formaður

Formaður Fíh er málsvari stjórnar og kemur fram fyrir hennar hönd varðandi málefni félagsins nema stjórnin ákveði annað. Formaður er jafnframt opinber talsmaður hjúkrunarfræðinga og hefur samskipti við stjórnsýslustofnanir fyrir hönd félagsins og hjúkrunarfræðinga. Formaður er fulltrúi Fíh í stjórn SSN.  Formaður Fíh kemur fram fyrir hönd stjórnar gagnvart starfsmönnum félagsins og hefur þar hlutverk framkvæmdastjóra félags.  Formaður ber ábyrgð á og annast daglegan rekstur félagsins í samræmi við stefnu stjórnar og í umboði hennar. 

Heimildir formanns til að skuldbinda félagið í daglegum rekstri skulu taka mið af:

         i.        Fjárhagsáætlunum samþykktum af stjórn.

         ii.       Frávik frá áætlunum raski ekki samþykktum fjárhagslegum markmiðum.

         iii.      Frávik frá fjárhagsáætlunum feli ekki í sér meiriháttar stefnubreytingu er varðar einstaka liði eða fjárhagsáætlanir í heild.

Allar skuldbindingar yfir kr. 500 þúsund skal bera sérstaklega undir stjórn til samþykktar eða synjunar.

Formaður skal fyrir 1. febrúar ár hvert, í samvinnu við gjaldkera og fjármálastjóra félagsins vinna tillögur að fjárhagsáætlun næsta fjárhagsárs.

Stjórnin ákvarðar laun formanns og önnur starfskjör, gengur frá starfslýsingu hans, setur honum erindisbréf og veitir honum lausn frá störfum.  Laun formanns skulu á hverjum tíma vera sambærileg launum hjúkrunarforstjóra Landspítala-háskólasjúkrahúss.

Gerður skal skriflegur ráðningarsamningur við formann.  Ráðningarsamningur gildir í einn mánuð eftir að nýr formaður hefur tekið til starfa.  Að þeim tíma liðnum er ekki um ráðningarsamband fráfarandi formanns og félagsins að ræða, né heldur frekari greiðslur til fráfarandi formanns.

Stjórn getur falið tveimur fulltrúum stjórnar umboð til að annast samninga við formann um laun og önnur starfskjör.

1. varaformaður

Í fjarveru formanns stýrir 1. varaformaður fundum og skal varaformaður taka að sér störf hans og þarf því að vera vel inni í þeim málum sem efst eru á baugi hverju sinni. 1. varaformaður tekur að sér öll störf formanns í leyfum hans, telji stjórn þess þörf.  Láti formaður af störfum innan þess tímabils sem hann hefur verið kjörinn til formennskunnar skal 1. varaformaður taka við og gegna embætti formanns, með réttindum og skyldum þeim er starfinu fylgja, út starfstímabilið. 1. Varaformaður er varamaður formanns í stjórn SSN.

 

 2. varaformaður

Í fjarveru formanns og 1. varaformanns stýrir 2. varaformaður fundum stjórnar. Hafi formaður og 1. varaformaður látið af störfum eða forfallast samtímis skal 2. varaformaður gegna formennsku í félaginu á meðan forföll vara eða út starfstímabilið, með þeim réttinum og skyldum sem skilgreind hafa verið að gildi um formann félagsins.

 

Gjaldkeri

Hlutverk gjaldkera félagsins, umfram almenn stjórnarstörf, er að hafa eftirlit með fjármálum félagsins almennt í umboði stjórnar og í samvinnu við formann félagsins og fjármálastjóra þess.  Gjaldkeri gætir þess að eftirlit með reikningshaldi og meðferð fjármuna félagsins sé í samræmi við ákvörðun stjórnar hverju sinni.  Í þessu sambandi skal hann kynna stjórn hvernig heildarskipulagi fjármála er háttað.  Gjaldkera er skylt að tryggja að til þess hæfir aðilar meti það svo að innra eftirliti, bókhaldi og reikningsskilum sé háttað eins og best verður á kosið hverju sinni og í samræmi við eðlilegar reikningsskilavenjur.  Hann nýtir sér eftir þörfum ráðgjöf endurskoðenda og fjármálastjóra félagsins og kallar eftir skýrslum um fjárhagstöðu þess til kynningar í stjórn félagsins.  Samstarf gjaldkera og starfsmanna félagsins skal aldrei fara fram án vitundar formanns.  Gjaldkeri skal leggja fyrir stjórn til samþykktar drög að fjárhagsáætlun næsta almanaksárs fyrir 1. febrúar ár hvert. Hann leggur fjárhagsáætlun yfirstandandi, sem og næsta almanaksárs, fyrir fulltrúaþing þegar hún hefur verið samþykkt í stjórn.
Gjaldkeri skal leggja fyrir stjórn endurskoðaða reikninga sl. árs fyrir 1. maí ár hvert.

Gjaldkeri stjórnar Fíh er formaður stjórnar Vísindasjóðs.

 

Ritari

Hlutverk ritara félagsins, umfram almenn stjórnarstörf,  er að hafa eftirlit með gagnaskráningu, skjalavörslu og útgáfustarfsemi félagsins almennt í umboði stjórnar og  í samvinnu við formann og aðra starfsmenn félagsins. Ritari gætir þess að gögn félagsins séu rituð samkvæmt reglum m.a. um gerðarbækur, varin tjóni og varðveitt í samræmi við trúnaðarstig þeirra. Hann hefur eftirlit með að rafræn samskipti félagsins séu trygg og í samræmi við öryggiskröfur hverju sinni. 
Ritara er skylt að tryggja að til séu sérstakar reglur um netpóst, rafræn skjöl og læsingu þeirra skjala sem send eru rafrænt.  Hann nýtir sér eftir þörfum ráðgjöf sérfræðinga og starfsmanna félagsins og kallar eftir skýrslum um gagnaskráningu, skjalavörslu og útgáfustarfsemi þess til kynningar í stjórn félagsins.

Ritari á samráð við formann félagsins um skipulag gagnaskráningar, skjalavörslu og útgáfustarfsemi þess.  Samstarf ritara og starfsmanna félagsins um þessi málefni skal aldrei fara fram án vitundar formanns.  Í samvinnu við formann og aðra starfsmenn félagsins lætur ritari vinna áætlanir um gagnaskráningu, skjalavörslu og útgáfustarfsemi félagsins næsta fjárhagsár og leggur fyrir stjórn svo taka megi tillit til þess við gerð fjárhagsáætlunar.  

 

Meðstjórnendur

Meðstjórnendum ber skylda til að kynna sér vel og taka upplýsta ákvörðun um öll þau mál er fjallað er um á fundum stjórnar.  Þeir skulu skipta með sér verkum þannig að annar gæti sérstaklega að störfum gjaldkera félagsins og hinn gæti sérstaklega að störfum ritara þannig að í forföllum eða við mögulegar afsagnir hinna fyrrnefndu geti meðstjórnendur tekið við hlutverki ritara/gjaldkera.

 

Varamenn

Varamenn sitja fundi stjórnar með málfrelsi og tillögurétt.  Aðeins í forföllum aðalmanns/-manna hafa varamenn atkvæðisrétt og skal ákveða í upphafi stjórnarfundar hvor varamannanna fer með atkvæðisrétt í forföllum eins stjórnarmanns.  Varamönnum ber skylda til að kynna sér vel og taka upplýsta ákvörðun um, hafi þeir atkvæðisrétt á viðkomandi fundi, öll þau mál er fjallað er um á fundum stjórnar.  Varamaður tekur sæti aðalmanns í stjórn ef til afsagnar þess síðarnefnda kemur.

 

Endurskoðendur

Endurskoðendur hafa meira hlutverk í nútíma rekstri en það að stemma af

bókhaldið í lok hvers árs. Þeir þurfa að starfa með stjórnendunum félagsins allt

árið og því er mikilvægt að val á endurskoðanda sé vandað og að flestu leiti byggt á sama grunni og beitt er við val á starfsmönnum.


Endurskoðun starfsreglna

Starfsreglur þessar skulu yfirfarnar árlega, á vinnufundi stjórnar og verður einungis breytt með samþykki meirihluta stjórnarmanna.

 

 

 

Með undirritun okkar staðfestum við að ofanritaðar reglur hafa verið yfirfarnar og samþykktar af meirihluta stjórnar Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, á fundi stjórnar þann 14. nóvember 2005.

 

 

Elsa B. Friðfinnsdóttir                          
Formaður     
Halla Grétarsdóttir
1. Varaformaður

Elín Ýrr Halldórsdóttir
2. Varaformaður

Eygló Ingadóttir                                   
Gjaldkeri

Jón Aðalbjörn Jónsson                
Ritari

Hrund Helgadóttir
Meðstjórnandi

Ingibjörg Sigmundsdóttir                      
Meðstjórnandi

Hólmfríður Kristjánsdóttir           
Varamaður

Fríða Björg Leifsdóttir
Varamaður

 

Sækja undirritað samrit starfsreglna stjórnar

 

 



Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi