Dagbjört H. Kristinsdóttir, hjúkrunarfræðingur, formaður, tilnefnd af Fíh
Christer Magnusson, hjúkrunarfræðingur, tilnefndur af Fíh
Birgir Björn Sigurjónsson, tilnefndur af Reykjavíkurborg
Lárus Ögmundsson, tilnefndur af Fjármálaráðuneytinu
Úthlutað er úr Starfsmenntunarsjóði fjórum sinnum á ári.
Umsóknarfrestur fyrir hverja úthlutun er: 1. janúar, 1. apríl, 1. júní og 1. október.
Hámarksupphæð lægri styrks er 50.000 kr . frá og með 1. júní 2009
Í júní ár hvert er úthlutað 12 styrkjum að upphæð kr. 100.000, vegna náms sem uppfyllir eftirfarandi skilyrði:
a. Kostnaður er a.m.k. tvöfalt meiri en innritunargjöld í Háskóla Íslands.
b. Sé framhalds- eða viðbótarnám í hjúkrunarfræði, fari fram við viðurkennda menntastofnun og því ljúki með formlegu námsmati.
-------------------------------------------------------------------------------------------
Frétt frá stjórn starfsmenntunarsjóðs í janúar 2010
Stjórn starfsmenntunarsjóðs ákvað á fundi sínum 20. janúar 2010 að stytta fyrningartímann sem liða þarf milli úthlutunar úr þremur í tvö ár. Félagar í sjóðnum geta því sótt um og fengið úthlutað 50.000 kr. á tveggja ára fresti. Breytingin tekur gildi frá og með 1 febrúar og kemur til framkvæmda við næstu úthlutun sem verður í apríl.
Fréttir frá stjórn starfsmenntunarsjóðs í apríl 2009
Stjórn starfsmenntunarsjóðs ákvað 16. apríl 2009, að hækka hámarksstyrk úr 40.000 í 50.000 krónur. Ákvörðunin tekur til umsókna sem verða afgreiddar frá og með júní 2009. Í júní á hverju ári eru einnig veittir tólf hærri styrkir vegna lengra og dýrara náms. Þeir voru áður 80.000 krónur en verða núna 100.000 krónur.Færri sótti um í fyrra en áætlað var þannig að sjóðurinn hefur safnað fé. Þess vegna getur hann greitt út meira á næstunni þó að iðgjöld hafa ekki hækkað.
Vinnuveitendur sem eru aðilar að sjóðnum greiða sem samsvarar 0,22% af dagvinnulaunum hjúkrunarfræðinga og eru þessir peningar ætlaðir að tryggja fjárhagslegan grundvöll sí- og endurmenntunar hjúkrunarfræðinga í tengslum við störf þeirra. Kynnisferðir eru einnig styrkhæfar.
Stjórn sjóðsins fundar 4 sinnum á ári, í janúar, apríl, júní og október. Á fundinum í dag var úthlutað styrkir fyrir um það bil 4 milljónir krónur.
Reykjavík, 16. apríl 2009.
Dagbjört Kristinsdóttir, formaður stjórnar starfsmenntunarsjóðs.
Frétt frá stjórn starfsmenntunarsjóðs í júní 2006
Eins og áður hefur komið frram á þessari síðu versnað fjárhagsstaða starfsmenntunarsjóðs Fíh á síðasta ári og hefði hann stefnt í þrot ef ekki hefði verið brugðist við. Viðbrögðin fólust í því að lægri styrkurinn var lækkaður úr 50.000 kr. í 40.000 kr. og fjöldi hærri styrkja var takmarkaður við 12 á ári, upphæð þeirra ákveðin 80.000 kr og þeim yrði úthlutað einu sinni á ári í júní. Tímabilið á milli fullra úthlutana úr sjóðnum var lengt úr 2 árum í 3 ár og ákveðið var að hætta að styrkja kynnisferðir.
Þrátt fyrir þessar aðhaldaðgerðir hefur sjóðurinn ekki átt fyrir öllum umsóknum um styrki. Því hefur stjórn sjóðsins þurft að forgangsraða þeim verkefnum sem sótt er um styrki til og hefur þá hafnað umsóknum sem ekki er alveg augljóst að séu í beinum tengslum við störf hjúkrunarfræðingins og nýtist honum beint í starfi, þó að veittir hafi verið styrkir til þessara verkefna fram að þessu. Til þessa hefur aðallega verið hafnað umsóknum um tungumálanám og tölvunám, en gætu orðið fleiri verkefni í framtíðinni.
Stjórn sjóðins vill minna félagsmenn á að fylla vel út umsóknareyðublaðið og þá sértaklega að gera ítalega grein fyrir um hvaða verkefni er verið að sækja. Það segir stjórninni lítið um verkefnið ef á umsókninni stendur t.d. “ innritunargjald í HÍ” eða “námskeið nr. 279 hjá Endurmenntun HÍ”. Jafnframt er mjög mikilvægt ef ekki er alveg augljóst að verkefnið uppfylli skilyrði 2. og 7. greinar reglna sjóðsins að rökstyðja vel hvernig það nýtist í starfi umsækjanda. Vel útfyllt og röstudd umsókn flýtir fyrir vinnslu hennar bæði hjá starfsfólki Fíh og stjórn sjóðsins.
Stjórn sjóðsins áskilur sér rétt til að endursenda ófullnægjandi umsóknir og mun taka harðar á þeim í framtíðinni, en hefur verið gert.
Reykjavík 23. júní 2006
Hildur Einarsdóttir, formaður stjórnar starfsmenntunarsjóðs.
------------------------------------------------------------------------------------------------
Frétt frá stjórn starfsmenntunarsjóð í janúar 2006
Á fundi stjórnar starfsmenntunarsjóðs Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga 19. janúar 2006, var gerð breyting á starfsreglun sjóðsins. Breytingin felst í að frá og með 1. febrúar n.k þurfa að líða 3 ár milli fulllra styrkveitinga úr sjóðnum í stað tveggja áður.Þessi breyting ásamt þeim breytingum sem gerðar voru á starfsreglunum s.l. haust eru gerðar til að sjóðurinn standi undir úthlutunum úr sjóðnum og rekstrarkosnaði hans. Þær eru ekki auðveldar fyrir félagsmenn og koma til með að hafa áhrif á endurmenntun þeirra. Stjórn sjóðsins harmar það en verður jafnframt að gæta þess að innkoman í sjóðinn standi undir úthlutunum.
Reykjavík, 30. janúar 2006.
Hildur Einarsdóttir, formaður stjórnar starfsmenntunarsjóðs Fíh