Forsíða / Styrkir og sjóðir / Styrkir til fagdeilda Fíh
Reglur um úthlutun styrkja Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga til fagdeilda félagsins.

 

Fagdeild getur sótt árlega um styrk til Fíh, annars vegar til erlends samstarfs og hins vegar til verkefna innanlands.

 

Ferli umsóknar

1.    Umsókn um styrk(i) skal berast til sviðstjóra fagsviðs Fíh fyrir 15. apríl ár hvert.

2.    Í umsókninni skal koma fram til hvers styrkurinn er ætlaður.

3.    Upplýsingar um bankanúmer ásamt kennitölu fagdeildar þarf að fylgja með umsókninni.

4.    Sviðstjóri fagsviðs Fíh fer yfir umsóknina og ákvarðar úthlutun í maí/júní á hverju ári í samráði við framkvæmdaráð og í samræmi við fjárhagsáætlun.

5.    Styrkumsókninni er svarað skriflega um leið og hún hefur verið afgreidd.

6.    Fyrir utan árlega styrki er hægt er að sækja um styrk til ákveðinna tímabundinna verkefna sem eru að öllu jöfnu ekki hluti af starfsemi fagdeildar. Sá styrkur er ákveðinn af stjórn Fíh hverju sinni. Umsóknin skal vera skrifleg og henni skal fylgja nákvæm fjárhagsáætlun verkefnisins.

 

Ferill greiðslu

1.    Stjórn fagdeildar ber ábyrgð á ráðstöfun styrkja.

2.    Styrkir eru greiddir gegn framvísun reikninga.

3.    Sé styrkurinn ekki sóttur innan 12 mánaða frá afgreiðslu hans fellur hann niður.

 

 

 

Samþykkt af framkvæmdaráði Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga 8. júlí 2009.



Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi