Leiðbeiningar við umsókn um styrk úr B-hluta Vísindasjóðs FÍH
Sækja skal um styrk úr B-hluta Vísindasjóðs rafrænt á þessu umsóknareyðublaði
Eyðublaðið er Word-skjal og þarf umsækjandi að byrja á því að vista það á sinni tölvu og fylla síðan út og meðhöndla sem venjulegt Word-skjal.
Umsóknir og fylgiskjöl berist rafrænt á netfangið visindasjodur@hjukrun.is fyrir miðnætti þann 15. mars 2010. Öruggast er að senda umsóknir og fylgiskjöl á pdf-formi, sérstaklega ef í þeim eru myndir, töflur eða óvenjuleg tákn. Vinsamlega merkið öll tölvuskjöl sem send eru sjóðnum með nafni umsækjanda og skýringu á innihald. Dæmi: “jonajonsdottir, 08.pdf”, “jonajonsdottir, CV08.doc” eða “jonajonsdottir, fylgiskj1.08.pdf”.
Hvað styrkir B-hluti Vísindasjóðs?
· Laun: Laun til rannsakanda taki hann sér launalaust leyfi á meðan á rannsóknarvinnu stendur. Almennan launakostnað aðstoðarfólks. Hámarkslaun sem sjóðurinn viðurkennir eru hin sömu og hjá Rannís. Skoða reglur Rannís
· Efniskostnað: Kostnað við kaup á efni, prentun spurningalista, sendingarkostnað. Efni geta verið ýmis konar t.d. sáraumbúðir.
· Tækjakaup: Tæki sem þarf að kaupa vegna rannsóknarinnar s.s. öndunarmælir, Bþ-mælir. Sjóðurinn styrkir ekki tæki sem teljast til eðlilegs skrifstofubúnaðar s.s. tölvur og prentara.
· Aðkeypta þjónustu: Greiðsla t.d. til ritara, fyrir tölfræðiþjónustu eða kennslu.
· Annan kostnað: Annar kostnaður sem tilfellur s.s. ferðir, veitingar o.þ.h.
Hvað styrkir B-hluti Vísindasjóðs ekki?
· Klínísk þróunar- og gæðaverkefni.
· Kostnað vegna kynningar á niðurstöðum: Ráðstefnugjöld, fargjöld á ráðstefnur, gerð veggspjalda.
· Laun meistara- eða doktorsnemanda ef viðkomandi nemandi sækir einnig um laun í sinni umsókn fyrir sömu rannsókn/ verkefni.
Helstu ástæður synjunar
· Nauðsynleg leyfi fyrir rannsókn liggja ekki fyrir.
· Rannsókn ekki hafin eða of stutt á veg komin.
· Ófullnægjandi umsókn.
· Bókarskrif sem ekki eru fræðiskrif.
· Rannsóknin telst vera þróunar- eða gæðaverkefni en ekki vísindarannsókn.
· Gildi rannsóknar fyrir hjúkrun er lítið eða ekki nægilegt.
· Vísindalegt nýnæmi er lítið eða ekkert.
1. Aðalumsækjandi
Aðalumsækjandi þarf að vera sjóðsfélagi í B-hluta Vísindasjóðs FÍH (sjá reglur um B-hluta Vísindasjóð FÍH). Aðalumsækjandi hefur yfirumsjón með verkefninu og er tengiliður við stjórn sjóðsins í tilvikum þegar fleiri aðilar koma að rannsókninni.
2. Heiti verkefnis
Hér má vera lýsandi vinnutitill.
3. Tegund verkefnis
Setjið X í viðkomandi reit. Ef um meistaraverkefni er að ræða þarf að tilgreina fjölda eininga. Ef um doktorsverkefni er að ræða þarf að geta skóla.
4. Meðrannsakendur
Tilgreinið meðrannsakendur. Ef verkefnið er nemaverkefni skal geta leiðbeinanda.
5. Samstarfsaðilar
Tilgreinið alla samstarfsaðila við verkefnið, starfsheiti og stofnun sem þeir vinna við.
6. Upphaf verkefnis og áætluð lok
Hér skal skrá tímasetningar (mánuð og ár) á upphafi vinnu við verkefnið og áætluð lok þess eða þess áfanga sem sótt er um. Mikilvægt er að áætla lok verkefnis þar sem reglur sjóðsins kveða á um að seinni hluti styrks fellur niður 2 árum eftir áætluð verklok nema stjórn sjóðsins sé gerð grein fyrir ástæðu seinkunnar.
7. Stutt lýsing á verkefninu
Hér þarf að gefa í stuttu máli skýra mynd af markmiði, aðferðum og vísindalegu gildi. Þessi kafli jafngildir abstrakt.
8. Fræðilegt yfirlit (literature review)
Lýsið stöðu alþjóðlegrar þekkingar á því sviði sem verkefnið byggir á. Í lokin skal taka saman í stuttu máli hvað er vitað og hvað ekki á þessu fræðasviði. Hér þarf að geta heimilda.
9. Gildi verkefnis fyrir hjúkrun og/eða aðrar fræðigreinar
Gildi getur falist í fræðilegu, tæknilegu, hagrænu og/eða heilsufarslegu gildi niðurstaðna. Lýsið í nokkrum línum gildi verkefnisins hérlendis og/eða erlendis.
10. Aðferðafræði
Hvaða aðferðir verða notaðar við verkefnið (t.d. eigindlegar, megindlegar). Lýsa þarf búnaði og mælitækjum sem notuð verða. Mælitæki geta verið ýmiss konar, t.d. spurningalistar, rannsóknarmælitæki og fleira. Nauðsynlegar upplýsingar um tækjabúnað eða afrit af spurningalistum þurfa að fylgja. Tilgreina þarf þýði. Fram þarf að koma áreiðanleiki spurningalistanna.
11. Framkvæmdaáætlun
Lýsið framkvæmdaáætlun skref fyrir skref. Ef um er að ræða rannsókn þarf að fjalla um leyfi, úrtak, aðgang að úrtaki, forprófun aðferðar, gagnasöfnun, úrvinnslu gagna, túlkun niðurstaðna, nýtingu og birtingu niðurstaðna.
Setjið fram tímaáætlun. Lýsið hlutverki meðrannsakenda og annarra samstarfsaðila.
12. Kostnaðaráætlun
Setjið fram áætlaðan kostnað og rökstyðjið.
a) Laun: Tilgreina þarf hverjum verða greidd laun, í hve langan tíma og hver verða laun og launatengd gjöld.
b) Efniskostnaður: Kostnaður við kaup á efni, prentun spurningalista og slíku. Efni geta verið ýmis konar t.d. sáraumbúðir.
c) Tækjakaup: Tilgreinið hvaða tæki þarf að kaupa s.s. öndunarmælir, Bþ-mælir.
Sjóðurinn styrkir ekki tæki sem teljast til eðlilegs skrifstofubúnaðar s.s. tölvur og prentara.
d) Aðkeypt þjónusta: Greiðsla t.d. til ritara, fyrir tölfræðiþjónustu eða kennslu.
e) Annar kostnaður: Annar kostnaður sem tilfellur s.s. ferðir, veitingar o.þ.h.
Upphæð sem sótt er um: Hér skal skrá heildarupphæð sem sótt er um.
Frekari rökstuðningur við kostnaðaráætlun: Hér er unnt að koma á framfæri frekari rökstuðningi eða skýringum varðandi einstaka kostnaðarliði sem sótt er um styrk til. Mikilvægt er að allir kostnaðarliðir séu skýrir og að gerð sé grein fyrir hugsanlegum óvissuþáttum.
13. Aðrir styrkir sem sótt er um eða sem verkefnið hefur hlotið
Hér skal tilgreina hvort sótt hefur verið um eða áætlað að sækja um aðra styrki og þá í hvaða sjóði.
14. Leyfi til rannsóknarinnar
Samþykki siðanefnda og/eða Persónuverndar eftir því sem við á þarf að fylgja sem fylgiskjal, þar sem þau eru skilyrði fyrir styrkveitingu úr sjóðnum. Leyfi siðanefndar er skilyrði fyrir rannsókn á heilbrigðissviði.
15. Frum-umsókn eða framhalds-umsókn
Vísað er til þess hvort Vísindasjóður FÍH hafi styrkt sama verkefni áður.
Ef um er að ræða umsókn um styrk til rannsóknar sem hefur áður hlotið styrk úr B-hluta Vísindasjóðs FÍH er óskað eftir að fyllt sé út Lokaskýrsla/Framvinduskýrsla vegna styrks úr Vísindasjóði FÍH þar sem beðið um yfirlit yfir framvindu verkefnisins og til hvaða þátta styrkur var nýttur.
16. Fylgiskjöl
Krafist er eftirfarandi fylgiskjala:
· Ferilskrá aðalrannsakanda og leiðbeinanda sé hann meðrannsakandi.
· Leyfi siðanefnda og Persónuverndar eftir því sem við á.
· Framvinduskýrslu sé umsóknin framhalds-umsókn.
Önnur fylgiskjöl skulu fylgja eftir því sem við á og skal tölusetja þau.