Reglur um B-hluta Vísindasjóðs Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga
Nafn og heimili
Sjóðurinn heitir B-hluti Vísindasjóðs Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og starfar hann með því skipulagi og markmiðum sem segir í reglum þessum. Heimili sjóðsins og varnarþing er í Reykjavík.
Markmið sjóðsins
Markmið sjóðsins er að stuðla að aukinni fræðimennsku í hjúkrun með því að styrkja rannsóknir og fræðiskrif hjúkrunarfræðinga. Sérstök áhersla er lögð á að styrkja klínískar rannsóknir í hjúkrun og rannsóknir meistara- og doktorsnema, sem eiga aðild að sjóðnum.
Aðild
Aðild að sjóðnum eiga allir þeir hjúkrunarfræðingar sem eru félagsmenn Fíh og launagreiðendur hafa greitt fyrir í Vísindasjóð á árinu fyrir úthlutun. Kallast þeir sjóðsfélagar.
Stjórn sjóðsins og hlutverk hennar
Stjórn sjóðsins skal skipuð fjórum fulltrúum. Í stjórn sitja gjaldkeri stjórnar Fíh, sviðstjóri fagsviðs Fíh, auk tveggja annarra fulltrúa er stjórn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga skipar. Stjórnin ákveður styrkhafa. Hún kveður á um bókhaldsumsjón einstakra styrkja. Stjórn sjóðsins skal halda gerðabók og rita í hana allar samþykktir sínar. Til að samþykkt sé lögmæt þarf meirihluti stjórnarmanna að greiða henni atkvæði.
Tekjur sjóðsins
Tekjur B-hluta Vísindasjóðs eru 3% af tekjum Vísindasjóðs Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og vaxtatekjur hans. Vinnuveitendur greiða í Vísindasjóð sem nemur 1.5% af föstum dagvinnulaunum hjúkrunarfræðinga.
Hlutverk sjóðsins
Hlutverk sjóðsins er að styrkja sjóðsfélaga sem vinna að rannsóknum og fræðiskrifum sem gildi hafa fyrir hjúkrun. Sjóðsfélagar sem eru í námi geta sótt um styrk til að vinna rannsóknarverkefni til meistaragráðu (30 einingarECTS hið minnsta) eða doktorsgráðu.
Úthlutunarreglur
Sjóðsfélagar geta sótt um styrk til sjóðsins til að vinna að rannsóknum og fræðiskrifum sem hafa gildi fyrir hjúkrun. Þeir sem æskja styrks úr sjóðnum skulu senda stjórn sjóðsins umsókn með þeim upplýsingum sem stjórn sjóðsins telur nauðsynlegar. Á grundvelli þeirra tekur sjóðsstjórn ákvörðun um hvort og hve háan styrk viðkomandi umsækjandi fær. Formaður Fíh staðfestir styrkveitingar stjórnar Vísindasjóðs.
Að jafnaði er hver rannsókn/verkefni styrkt einu sinni. Ef sótt er endurtekið um styrk til sama verkefnis þarf sjóðstjórn að fá skýra heildarsýn yfir kostnað og framvindu verkefnis (sbr. framvinduskýrslu). Styrkjum er úthlutað einu sinni á ári, að vori, og er umsóknafrestur til 15. mars ár hvert. Skilyrði fyrir styrkveitingu er að siðanefnd/-ir og Persónuvernd hafi veitt leyfi þar sem það á við og vinna við rannsóknina sé hafin.
Umsóknir
Umsóknir og fylgiskjöl skulu berast rafrænt á þar til gerðu eyðublaði , á netfangið visindasjodur@hjukrun.is fyrir miðnætti þann 15. mars ár hvert. Leiðbeiningar um útfyllingu umsóknareyðublaðs er að finna hér (sjá link). Þeir sem sækja endurtekið um styrk úr sjóðnum fyrir sama verkefni þurfa að fylla út framvinduskýrslu og senda með umsókninni.
Umsækjendum er bent á að vönduð umsókn eykur líkur á styrkveitingu.
Upphæð styrkja
Upphæð styrkja ræðst af fjármagni sjóðsins, fjölda umsókna og gæðum þeirra hverju sinni. Meistararannsóknir fá alla jöfnu sömu styrkupphæð og fá 30 ECTS rannsóknir ákveðna upphæð og 60 ECTS eininga rannsóknir aðra og hærri upphæð. Upphæðin getur verið mismunandi frá ári til árs þar sem upphæð styrkja er háð fjármagni sjóðsins og fjölda umsókna hverju sinni. Leitast er við að styrkja doktorsrannsóknir um einn veglegan styrk á meðan á námi stendur.
Afhending styrkja
Styrkur úr B-hluta vísindasjóðs er greiddur út í tveimur áföngum. Við afhendingu styrksins er greiddur út fyrri helmingur hans og seinni helmingur við skil á þeim hluta sem styrkurinn náði til; áfangaskýrslu eða lok verkefnis. Til að fá seinni helminginn greiddan þarf styrkhafi að senda til sjóðstjórnar tilskilin gögn. Sviðstjóri fagsviðs Fíh hefur umsjón með styrkgreiðslum.
Endurgreiðsla
Verði ekkert úr verkefni eða því ekki lokið af einhverjum ástæðum innan þess tíma er gert var ráð fyrir skal styrkþegi gera stjórn sjóðsins grein fyrir ástæðum þess og endurgreiða þann hluta styrksins sem ekki hefur verið notaður til verkefnisins.
Ef seinni hluti styrks hefur ekki verið sóttur 2 árum eftir áætluð verkefnalok og stjórn sjóðsins ekki verið gerð grein fyrir ástæðunni fellur styrkurinn niður og leggst við úthlutunarfé B-hluta Vísindasjóðs að ári.
Samþykktar af stjórn sjóðsins í apríl 2008.
Endurskoðaðar í janúar 2009
Stjórn sjóðsins 2009-2011
Auðna Ágústdóttir formaður stjórnar Vísindasjóðs
Aðalbjörg J. Finnbogadóttir sviðstjóri fagsviða Fíh
Guðbjörg Guðmundsdóttir sérfræðingur í hjúkrun LSH
Ragnheiður Gunnarsdóttir gjaldkeri stjórnar Fíh