Forsíða / Tímarit hjúkrunarfræðinga / Leiðbeiningar til höfunda ritrýndra fræðigreina
Leiðbeiningar til höfunda ritrýndra fræðigreina

 

 

Handrit að fræðigreinum skulu send rafrænt á hjukrun@hjukrun.is.


Einn höfundanna þarf að vera ábyrgur fyrir samskiptum við tímaritið og nafn hans þarf að koma fram í netskeyti með handritinu.

 

Hér má sækja leiðbeiningar til höfunda og eyðublað með upplýsingar um höfund o.fl. sem senda þarf með handriti.

 

 

 

Leiðbeiningar til höfunda ritrýndra fræðigreina
Upplýsingar um höfund

 

Þetta eyðublað kemur í staðinn fyrir atriði 4 í umfjöllun um fylgibréf í leiðbeiningum til höfunda þannig að ekki þarf að fjalla um framlag höfunda í fylgibréfi. Vistið eyðublaðið undir nafni "Höfundur_styttur titill". Styttur titill er sá sami og notaður er efst í hægri horni handrits.

Einnig er mælt til þess að höfundur kynni sér leiðbeiningar til höfunda fræðslugreina. Hér er fjallað almennt um greinaskrif í Tímariti hjúkrunarfræðinga.

Leiðbeiningar um fræðslugreinar

Ferlið við ritrýni er svo eins og segir að neðan.

    Handrit berst

    Svarbréf til höfunda innan viku frá því handrit berst

    Frá ritstjóra til RRG í síðasta lagi vika frá því handrit berst.

    Frá RRG til ritstjóra í síðasta lagi þrem vikum eftir að handrit berst til tímaritsins (tvær vikur frá fyrirspurn ritstjóra). Þar kemur fram hvort handritinu er hafnað strax eða fari í ritrýni. Ef handritið fer í ritrýni skal tilnefna tvo ritrýna og einn til tvo til vara.  RRG lætur ritstjóra vita hvar tilnefndir ritrýnar vinna og póstfang ef RRG hefur það tiltækt.

    Ritstjóri sendir svar til höfunda sé grein hafnað innan fjögurra vikna frá því upprunalegt  handrit berst.

    Ristjóri sendir fyrirspurn til væntanlegra ritrýna innan fjögurra vikna frá því handrit barst.

    Hafi væntanlegir ritrýnar ekki svarað innan viku skal ítreka fyrirspurn og hringja í viðkomandi ef tölvupósti er ekki svarað.

    Séu fimm vikur liðnar frá því handrit barst og  ekki hafa fengist ritrýnar skal allur þungi lagður á að fá ritrýna. RRG og ritstjóri vinni hratt saman að því og finna ritrýni  innan viku.

    Handrit og leiðbeiningar séu ávallt komin í hendur ritrýna 7 vikum eftir að handrit barst upphaflega.  Ritrýnir hefur 3 vikur til að skrifa rýnina.

    Tveim vikum  (9 vikum eftir að handrit barst) eftir að ritrýni hefur verið sent handritið fær hann áminningu í tölvupósti þar sem fram kemur að hann hafi eina viku til að ljúka ritrýninni.

    Ritrýnir skal skila ritrýni til ritstjóra 10 vikum eftir að handrit barst upphaflega.

    Ritstjóri sendir umsagnir ritrýna til RRG.  Báðar í einu.

    RRG hefur tvær vikur til að ákveða niðurstöðu.

    12 vikum eftir að handrit barst upphaflega hefur ritstjóra borist handrit frá RRG og tillögur að bréfi til höfundar.

    Þegar 13 vikur eru liðnar frá því handrit barst skal ritstjóri vera búinn búinn að svara höfundi.

     

    Hafi handrit ekki borist frá ritrýnum eftir 12 vikur skal höfundi  tilkynnt um það.

     

    Höfundar hafa þrjá mánuði til að yfirfara handrit

    Handriti skilað til ritstjóra aftur.

    Ofangreindir liðir endurteknir þannig að ekki líði meir en fimm vikur frá því handrit kemur aftur þar til vinnslu þess hjá tímaritinu er lokið.

Prentvæn útgáfa

« Maí / 2012 »
SMÞMFFL
    01 02 03 04 05
06 07 08 09 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    
       






Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi