Forsíða / Tímarit hjúkrunarfræðinga / Ritstjórnarstefna og starfsáætlun
Ritstjórnarstefna


 

Tímarit hjúkrunarfræðinga er gefið út fimm sinnum á ári.

Tímaritið er málgagn félagsmanna í Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga og í því er reynt að endurspegla ólíkar skoðanir og viðhorf til hjúkrunar. Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga leggur metnað sinn í að allir félagsmenn þess finni þar efni sér til gagns, fróðleiks og ánægju.

Tímaritið er vettvangur fræðilegrar og félagslegrar umfjöllunar um hjúkrun. Í faglega hluta tímaritsins eru birtar margvíslegar greinar sem fjalla um öll svið hjúkrunar. Greinar flokkast í fræðigreinar og fræðslugreinar.

Fræðigreinar eru rannsóknagreinar, yfirlitsgreinar og kenningagreinar, þ.e. greinar sem á ýtarlegan hátt fjalla um þróun þekkingar í hjúkrun, hvort heldur sem er hjúkrunarstarfið, hjúkrunarstjórnun, hjúkrunarkennsla, hjúkrunarrannsóknir eða stefnumótun í hjúkrunar- og heilbrigðisþjónustunni. Lögð er áhersla á beitingu margvíslegra rannsóknaraðferða, fjölbreytileika í fræðilegri nálgun viðfangsefna og vönduð vinnubrögð. Fræðigreinar eru ritrýndar. Fræðiritnefnd les þær yfir og kemur með tillögur um ritrýna. 

Fræðslugreinar fjalla um margvísleg viðfangsefni hjúkrunar og byggjast að einhverju leyti á fræðilegum heimildum ásamt athugunum eða reynslu höfunda. Þar skiptir miklu frumleiki í umfjöllun og efnistökum, menningarlegur margbreytileiki í hjúkrun og þróun hjúkrunar. Í blaðinu er einnig að finna viðtöl við fólk um hjúkrun og aðrar faglegar upplýsingar sem eiga erindi til hjúkrunarfræðinga.

Í félagslega hluta tímaritsins eða fréttahlutanum er greint frá kjaramálum og því sem er að gerast hjá félaginu. Þar er einnig að finna fréttir af svæðis- og fagdeildum félagsins.

Ritstjóri ber ábyrgð á að efni, útgáfa og rekstur tímaritsins sé í samræmi við ritstjórnarstefnu þess. Ritstjóri ásamt ritnefnd leggur metnað í að tímaritið sé vandað að efni, málfari og útliti. Áhersla er lögð á að fræðigreinar standist vísindalegar kröfur. 

Formaður félagsins ber ábyrgð á félagslegu efni þess öðru en aðsendum greinum. Höfundar aðsendra greina bera ábyrgð á efni þeirra. Skoðanir, sem í þeim birtast, þurfa ekki að samrýmast stefnu Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga.

 

Prentvæn útgáfa

« Maí / 2012 »
SMÞMFFL
    01 02 03 04 05
06 07 08 09 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    
       






Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi