Í VI. kafla laga Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga segir í 33. grein:
Ritnefnd skal skipuð fjórum fulltrúum og tveimur til vara sem kjörnir eru á fulltrúaþingi. Ritstjóri skal vera ráðinn af stjórn félagsins.
Ritnefnd skal marka ritstjórnarstefnu Tímarits hjúkrunarfræðinga, annast efnisöflun og útgáfu tímaritsins.
Ritstjórn ritrýndra greina skal starfa til hliðar við ritnefnd og skal hún skipuð tveimur fulltrúum og einum til vara, sem kjörnir eru á fulltrúaþingi.
Samkvæmt lögum félagsins markar ritnefnd ritstjórnarstefnu, annast efnisöflun og útgáfu tímaritsins. Samkvæmt ritstjórnarstefnu leggur ritstjóri ásamt ritnefnd metnað í að tímaritið sé vandað að efni, málfari og útliti. Formaður félagsins ber ábyrgð á félagslegu efni þess öðru en aðsendum greinum. Höfundar aðsendra greina bera ábyrgð á efni þeirra. Skoðanir, sem í þeim birtast, þurfa ekki að samræmast stefnu Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga.
Ritnefndog ritstjórn ritrýndra greina eru kosnar á fulltrúaþingi á tveggja ára fresti og sitja í tvö ár
Starfsreglur ritnefndar
Ritnefnd er skipuð fjórum aðalmönnum og tveimur til vara. Ritnefnd velur sér formann í upphafi starfstímabils. Ritnefndarfundir eru haldnir að jafnaði einu sinni í mánuði og eru allir ritnefndarmenn boðaðir á fundina. Á ritnefndarfundum er farið yfir efni tölublaðanna og ritnefnd skiptir með sér störfum. Hvert handrit, sem óskað er eftir að birtist sem fræðslugrein í tímaritinu, er lesið yfir af tveimur ritnefndarmönnum. Fylgt er gátlista fyrir fræðslugreinar við mat á handritum.
Starfsreglur ritstjórnar ritrýndra greina
Ritstjórn ritrýndra greina er skipuð tveimur aðalfulltrúum og einum til vara. Hún velur sér formann í upphafi starfstímabils. Hlutverk ritstjórnarinnar er að meta handrit að fræðigreinum sem berast tímaritinu og finna þeim ritrýna. Ritstjórnin fylgir gátlista fyrir fræðigreinar við mat þeirra. Handrit, sem metin eru hæf til ritrýningar, eru þau sem uppfylla að nokkru eða öllu leyti meginþættina sem fram koma í gátlistanum. Ritstjórn les yfir umsagnir ritrýna áður en þær eru sendar höfundum handrita. Ákvörðun um birtingu handrits, sem sent hefur verið til ritrýningar, byggist á tillögum ritrýna. Ritstjórn ritrýndra greina vinnur ásamt ritstjóra að því að hafa skýrar reglur um ritun fræðigreina til leiðbeiningar fyrir handritshöfunda. Reglur tímaritsins eru á heimasíðu félagsins. Ritstjórn ritrýndra greina ásamt ritstjóra vinnur að því að vera höfundum samþykktra handrita innan handar við lokavinnslu til birtingar.
| « | Maí / 2012 | » |
| S | M | Þ | M | F | F | L |
| 01 | 02 | 03 | 04 | 05 | ||
| 06 | 07 | 08 | 09 | 10 | 11 | 12 |
| 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 |
| 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 |
| 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | ||