1.1. Trúnaðarmenn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga skulu vera starfandi innan hverrar svæðisdeildar, á sjúkrahúsum, heilsugæslustöðvum og öðrum heilbrigðisstofnunum.
1.2. Trúnaðarmann og varatrúnaðarmann skal kjósa til tveggja ára í senn. Atkvæðisrétt hafa allir starfandi félagsmenn Fíh. Höfuðreglan skal vera sú að einn trúnaðarmaður er kjörinn á vinnustað þar sem eru a.m.k. fimm starfsmenn. Hverfi trúnaðarmaður úr starfi eða sé fjarverandi lengur en tvo mánuði ber varatrúnaðarmanni að taka við.
1.3 Á stærri stofnunum skal miðað við að einn til tveir trúnaðarmenn séu fyrir hvert svið skv. skipulagsheild hjúkrunar.
1.4. Kjósa skal aðaltrúnaðarmann á þeim vinnustað/svæði þar sem eru þrír eða fleiri trúnaðarmenn. Þar skulu allir trúnaðarmenn hittast a. m.k. annan hvern mánuð og ræða þau mál, er upp koma hverju sinni og skipta með sér störfum. Á þessum fundum skal m.a. ræða og skipuleggja störf trúnaðarmanna út frá reglugerð um trúnaðarmenn.
Fundargerðarbók skal haldin.
1.5. Trúnaðarmann má einnig kjósa fyrir tiltekið félagssvæði ef ekki er unnt að uppfylla ákvæðin um lágmarksfjölda félagsmanna. Þá er einstökum svæðisdeildum heimilt að skipa trúnaðarráð sem þjóni þeim stofnunum sem ekki ná að uppfylla ákvæði um lágmarksfjölda félagsmanna. Stefnt skal að því að í trúnaðarráði sé einn starfsmaður frá hverri stofnun á svæðinu. Trúnaðarráð tilnefnir síðan trúnaðarmann.
1.6. Framkvæmdastjóri Fíh og stjórnir svæðisdeilda skulu fylgjast með að trúnaðarmenn séu kosnir samkvæmt grein 1.2. Trúnaðarmaður/aðaltrúnaðarmaður tilkynnir bréflega nöfn kjörinna trúnaðarmanna til stjórnar svæðisdeildar og framkvæmdarstjóra Fíh, sem síðan tilkynnir kjör trúnaðarmanna til viðkomandi stofnunar.
1.7. Hjúkrunarfræðingar í stjórnunarstöðu skulu að öllu jöfnu ekki gegna starfi trúnaðarmanns.
2.1. Trúnaðarmaður starfi sem tengiliður milli félagsmanna Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og forráðarmanna stofnana annars vegar og milli félagsmanna og stjórnar Fíh/svæðisdeildar hinsvegar.
2.2. Trúnaðarmaður leitist við að eiga góð tengsl við þá sem hann þarf að eiga samskipti við og stuðli að sáttum þegar til ágreinings kemur.
3.1. Stjórn Fíh skal halda námskeið fyrir trúnaðarmenn a.m.k. einu sinni á ári.
3.2. Félaginu ber skylda til að upplýsa trúnaðarmenn um stöðu kjaramála og annarra mál er varða hjúkrunarfræðing a.m.k. einu sinni í mánuði og oftar ef þurfa þykir.
3.3. Félaginu ber skylda til að styrkja og aðstoða trúnaðarmenn sína í hverjum þeim málum sem upp geta komið.
3.4. Trúnaðarmaður á rétt á því að skjóta málum sem hann einhverra hluta vegna telur sig ekki geta leyst úr, til stjórnar viðkomandi svæðisdeildar og/eða stjórnar félagsins til úrskurðar.
3.5. Trúnaðarmaður á rétt á tiltækum samantektum frá skrifstofu Fíh á helstu kjaraatriðum
4.1 Trúnaðarmanni ber að standa vörð um réttindi og skyldur félagsmanna.
4.2. Trúnaðarmanni ber skylda til að kynna sér ítarlega kjarasamning Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga. Honum ber að upplýsa félagsmenn um ný og breytt kjaraatriði og fylgjast með réttindi og skyldur félagsmanna og stofnana séu virtar.
4.3. Trúnaðarmanni ber að taka við kvörtunum og fyrirspurnum félagsmanna og rannsaka efni þeirra og krefja vinnuveitanda um lagfæringu ef þess gerist þörf. Kynna skal stjórn félagsins slík mál.
4.4. Trúnaðarmanni ber að fylgjast með þegar nýir félagsmenn ráða sig á stofnunina/svæðið og kynna þeim hver sé þeirra trúnaðarmaður. Einnig skal hann kynna þeim helstu atriði kjarasamninga og sérstök kjör á stofnuninni.
4.5 Trúnaðarmanni ber að standa fyrir vinnustaðafundi um sérstök málefni ef viðkomandi svæðisdeild eða einstakir félagsmenn óska þess. Fundargerðabók skal þá haldin.
4.6. Trúnaðarmanni ber að kynna félagsmönnum stöðu samningamála þegar tilefni er til, annast fundaboð, sjá um atkvæðagreiðslu í félaginu á viðkomandi vinnustað eða svæði og annast önnur trúnaðarstörf á vegum félagsins sem stjórn félagsins felur trúnaðarmanni hverju sinni.
5.1. Trúnaðarmaður á rétt á því að rækja skyldur sínar í vinnutíma sbr. 29.gr. laga um kjarasamning opinberra starfsmanna nr. 94/1986.
5.2. Trúnaðarmaður á rétt á því að hann sé ekki látinn gjalda þessa að gegna stöðu trúnaðarmanns, sbr.gr. 30 fyrirnefnda laga.
5.3. Trúnaðarmaður á rétt á því að vinnuveitandi láti honum í té upplýsingar um lausar stöður, ráðningakjör og umsækjendur.
5.4. Að öðru leyti vísast til fyrirnefnda laga.
Samþykkt í stjórn Félags íslenskra hjúkrunarfæðinga
3. júní 1994